Fimm manna nefnd sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði til að leggja mat á þrjá umsækjendur um stöðu dómara við Mannréttindadómstól Evrópu (MDE) hefur lokið störfum. Niðurstaða hennar er sú að allir umsækjendurnir þrír sem sóttust eftir tilnefningu teljist hæfir til að vera verða tilnefndir af hálfu Íslands.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að umsækjendum sem nefndin leggur til að tilnefnd verði sem dómaraefni „skyldi ekki raðað innbyrðis og skyldu ekki sæta frekari samanburði á hæfni.“
Þau sem sóttu um að vera tilnefnd sem dómaraefni af Íslands hálfu eru Jónas Þór Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður, Oddný Mjöll Arnardóttir, landsréttardómari og rannsóknarprófessor og Stefán Geir Þórisson, hæstaréttarlögmaður.
Þing Evrópuráðsins tekur ákvörðun um það hvert þeirra verður fyrir valinu sem íslenski dómarinn við réttinn, en Evrópuráðið fór þess á leit við íslensk stjórnvöld að þau myndu tilnefna þrjú dómaraefni.
Mannréttindadómstóll Evrópu fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja.
Trúnaðarmaður Sjálfstæðisflokks á meðal umsækjenda
Jónas Þór Guðmundsson er hæstaréttarlögmaður er núverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar og hefur verið allt frá árinu 2014. Hann er einnig fyrrverandi formaður kjararáðs og hefur verið fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í þessum embættum og hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, sérstaklega eftir að Bjarni Benediktsson tók við formennsku í honum. Jónas gegndi formennsku í stjórn Lögmannafélags Íslands um tíma.
Oddný Mjöll Arnardóttir er dómari við Landsrétt. Hún er einnig rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands og hefur verið prófessor við lagadeild skólans frá 2012, en var þar áður prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík frá 2006. Ef hún hreppir embættið yrði hún fyrsta konan til þess að verða sett dómari við MDE fyrir hönd Íslands.
Stefán Geir Þórisson hæstaréttarlögmaður hefur reynslu af dómstörfum, en hann er um þessar mundir varadómandi við endurupptökudóm. Áður var Stefán Geir skipaður dómari við Alþjóðlega íþróttadómstólinn (CAS) í borginni Lausanne í Sviss til fjögurra ára frá 1. janúar 2017. Stefán hefur einnig sinnt trúnaðarstörfum fyrir Knattspyrnusamband Íslands um árabil og sat meðal annars í stjórn KSÍ frá 2007-2009.