Neita því að umhverfismatið sé aðeins til málamynda

Eina raunhæfa aðgerðin sem getur komið í veg fyrir mikil og neikvæð umhverfisáhrif af færslu hringvegarins í Mýrdal er að færa hann ekki niður að strönd, segir Umhverfisstofnun.

Dyrhólaós er búsvæði fjölmargra fuglategunda.
Dyrhólaós er búsvæði fjölmargra fuglategunda.
Auglýsing

Umhverf­is­stofnun telur að ekki sé unnt að ráð­ast i end­ur­heimt eða mót­væg­is­að­gerðir til að bæta fyrir umhverf­is­á­hrif sem myndu hljót­ast af því að færa hring­veg­inn við Vík í Mýr­dal ofan af Gatna­brún og niður að strönd­inni. „Eina raun­hæfa aðgerðin sem getur komið í veg fyrir þessi miklu nei­kvæðu umhverf­is­á­hrif er að velja veg­inum annan stað en hér er gert.“

Þetta er meðal þess sem Umhverf­is­stofnun benti á í umsögn sinni um mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar vegna fyr­ir­hug­aðrar færslu hring­veg­ar­ins í Mýr­dal. Umhverf­is­stofnun segir veg­lín­una með­fram strönd­inni liggja nærri land­svæðum sem talin eru hafa mjög mikið vernd­ar­gildi og staði sem séu vin­sælir meðal ferða­manna.

Skipu­lags­stofnun féllst nýverið á mats­á­ætl­un­ina með skil­yrð­um.

Auglýsing

Veg­ur­inn liggur nú um Gatna­brún en sveit­ar­fé­lagið vill fá veg með strönd­inni sem þyrfti þá að fara umhverfis eða yfir Dyr­hóla­ós, og svo í jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall. Þessi skipu­lags­lína sveit­ar­fé­lags­ins sam­kvæmt gild­andi aðal­skipu­lagi er kölluð val­kostur 1 í mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­inn­ar. Fjallað er þar um sex val­kosti til við­bót­ar, fjóra sem gera ráð fyrir jarð­göngum og tvo í námunda við núver­andi vegstæði.

­Sér­fræð­ingar Umhverf­is­stofn­unar vöktu í umsögn sinni athygli á því að svo virð­ist sem þegar hafi verið ákveðið hvar veg­ur­inn skuli liggja því að í grein­ar­gerð Vega­gerð­ar­innar komi fram að verið sé að vinna for­hönnun vegar sam­kvæmt val­kosti 1 og að mat á umhverf­is­á­hrifum verði unnið sam­hliða þeirri for­hönn­un.

„Um­hverf­is­stofnun telur að þegar mati á umhverf­is­á­hrifum virð­ist ekki ætlað annað hlut­verk en að setja fram til­lögu um útfærslu veg­ar­ins, t.d. hvort fláar verði 1:2,5 eða 1:3 eða hvort ræsi verða fleiri eða færri, þá er mats­ferlið orðið lítið annað en forms­at­riði sem þarf að ljúka áður en ráð­ist er í fram­kvæmd­ir.“

Valkostirnir sjö sem Vegagerðin metur.

Umhverf­is­stofnun seg­ist svo hafa upp­lýs­ingar um að lík­ast til hafi aldrei verið hann­aður vegur um Gatna­brún heldur sé núver­andi vegur lag­fær­ing eldri vegar sem hafi verið val­inn staður á sama hátt og núver­andi veg­ur, þ.e. „settur út eftir aug­an­u“. Stofn­unin telur því að koma þurfi fram að núver­andi vegur sé á engan hátt besta veg­tækni­lega lausnin á þessum stað og unnt sé að minnka halla og krappar beygjur með nýrri hönnun eins og ráð­gert er.

Vega­gerðin brást við þessum athuga­semdum Umhverf­is­stofn­unar með þeim orðum að þótt ákveðin stefna hafi verið mörkuð í aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps og sam­göngu­á­ætlun stjórn­valda, sem felur í sér strand­veg og jarð­göng, beri Vega­gerð­inni að skoða aðra raun­hæfa val­kosti. Auk þess hafi Vega­gerðin skyldum að gegna varð­andi kröfur um veg­tækni­leg atriði, greið­færni, umferð­ar­ör­yggi og kostn­að. „Unnið er að frum­drögum fyrir alla val­kost­ina og verður sam­bæri­legra gagna aflað um val­kost­ina og gerð grein fyrir þeim í umhverf­is­mats­skýrslu. Vega­gerðin mót­mælir þeirri túlkun Umhverf­is­stofn­unar að umhverf­is­matið sé aðeins til mála­mynda.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent