Nýir hluthafar keyptu fyrir 29,7 milljarða króna í Síldarvinnslunni

Miðað við það sem fékkst fyrir 29,3 prósent hlut í Síldarvinnslunni er markaðsvirði félagsins 101,3 milljarðar króna. Samherji og Kjálkanes fá yfir tólf milljarða króna hvort fyrir hluti sem þau seldu.

Síldarvinnslan verður eina skráða félagið á Íslandi sem er með höfuðstöðvar á landsbyggðinni.
Síldarvinnslan verður eina skráða félagið á Íslandi sem er með höfuðstöðvar á landsbyggðinni.
Auglýsing

Hluta­fjár­út­boði Síld­ar­vinnsl­unn­ar, sem verður skráð á markað í síðar í þessum mán­uði, lauk í gær. Alls voru til sölu 498,6 millj­ónir hluta, alls 29,3 pró­sent í félag­inu, en rúm­lega tvö­föld eft­ir­spurn varð eftir hlut­um. Þeir nálægt 6.500 aðilar sem skráðu sig fyrir hlut sótt­ust eftir að kaupa fyrir um 60 millj­arða króna en selt var fyrir 29,7 millj­arða króna. Útboðs­gengi í til­boðs­bók A var 58 krónur á hlut en 60 krónur á hlut í til­boðs­bók B. Miðað við þetta verð er heild­ar­virði Síld­ar­vinnsl­unnar 101,3 millj­arðar króna. 

Eftir hluta­fjár­út­boðið eru hlut­hafar í Síld­ar­vinnsl­unni, sem er eitt stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins og heldur á 7,7 pró­sent af úthlut­uðum afla­heim­ild­um, tæp­lega sjö þús­und tals­ins.

Gjald­dagi og eindagi áskrift­ar­lof­orða í útboð­inu er 20. maí 2021 og er áætlað að afhenda kaup­endum hluti í Síld­ar­vinnsl­unni þann 26. maí 2021 að und­an­geng­inni greiðslu. Þá mun nýr hlut­haf­alisti birt­ast og í ljós kemur hverjir það voru sem keyptu sig inn í félag­ið.

Áætlað er að við­skipti með hluta­bréf í Síld­ar­vinnsl­unni hefj­ist 27. maí 2021 en Nas­daq Iceland mun til­kynna um fyrsta við­skipta­dag með hluta­bréfin með minnst eins við­skipta­dags fyr­ir­vara.

Auglýsing
Á heima­síðu Síld­ar­vinnsl­unnar er haft eftir Gunn­þór Ingv­ars­syni, for­stjóra henn­ar, að .eð fyr­ir­hug­aðri skrán­ingu félags­ins í Kaup­höll verði „Síld­ar­vinnslan með þá sér­stöðu að vera eina skráða félagið með höf­uð­stöðvar á lands­byggð­inn­i.“

Sam­herji og Kjálka­nes seldu mest

Selj­endur hluta voru stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar og helstu stjórn­endur henn­ar.

Sam­herji hf., stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unn­ar, fær um 12,2 millj­arða króna af þeirri upp­hæð sem selt var fyrir í sinn hlut og Kjálka­nes, félag í eigu Björg­ólfs Jóhanns­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­skyldu­bönd­um, fær 12,2 millj­arða króna sömu­leið­is. 

Eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl, sem er meðal ann­ars í eigu Sam­herja og Björg­ólfs, seldi hluti fyrir einn millj­arð króna og Síld­ar­vinnslan fékk um 738 millj­ónir króna fyrir þá eigin hluti hennar sem hún seldi.

Sam­herji verður áfram stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar þrátt fyrir að selja ofan­greindan hlut í henni með 32,6 pró­sent eign­ar­hlut. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Kjálka­nes mun áfram eiga 19,2 pró­sent og Snæ­fugl mun áfram eiga 4,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni.

Saman fara þessi þrjú félög, sem skipa þrjá af fimm stjórn­ar­mönnum í Síld­ar­vinnsl­unni eins og er og Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­sakar hvort að eigi að skil­grein­ast sem tengdir aðil­ar, með 56,1 pró­sent hlut, og þar með meiri­hluta í Síld­ar­vinnsl­unni. Virði þess hlutar miðað við útboðs­gengi er 56,8 millj­arðar króna.

Stjórn­endur hagn­ast vel á nokkrum mán­uðum

Þá seldi félagið Hraun­lón hluti fyrir um 608 millj­óna króna.

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar kemur fram að Gunn­þór Ingva­son, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unn­ar, Axel Ísaks­son og Jón Már Jóns­son, sem allir eiga sæti í fram­kvæmda­stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar séu eig­endur Hraun­lóns. Þeir keyptu félagið í lok árs 2020. 

Alls á Hraun­lón um 27,5 millj­ónir hluta í Síld­ar­vinnsl­unni og greiddi fyrir þann hlut um 640 millj­ónir króna fyrir nokkrum mán­uðum síð­an. Sá hlutur er nú met­inn á 1.595 millj­ónir króna og hefur því hækkað um 955 millj­ónir króna á fjórum mán­uð­um. Hraun­lón er að selja 37 pró­sent af eign sinni og fékk, líkt og áður sagði, 608 millj­ónir króna fyr­ir. Áfram mun félagið eiga um eitt pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni sem er metið á um einn millj­arð króna.

Hraun­lón var áður í jafnri eigu Ein­ars Bene­dikts­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Olís, og Gísla Bald­urs Garð­ars­sonar lög­manns. Sam­herji fjár­festi í Olís árið 2012 þegar þeir tveir áttu félagið að fullu og árið 2017 voru þeir að öllu leyti keyptir út úr Olís, meðal ann­ars af Sam­herja. Olís rann síðar saman við smá­söluris­ann Haga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent