Nýting lítilla flugvalla svar við samkeppnishamlandi umhverfi

Lággjaldaflugfélög eiga erfitt með að fá pláss á stórum flugvöllum vegna núverandi úthlutunarkerfis á afgreiðslutímum, segir hagfræðingur í nýjasta tölublaði Vísbendingar. Kerfið hefur neytt flugfélögin til að róa á önnur mið og sækja á smærri flugvelli.

flugvél
Auglýsing

Núver­andi úthlut­un­ar­kerfi á afgreiðslu­tímum flug­valla í Evr­ópu er óskil­virkt og hamlar sam­keppni á milli flug­fé­laga. Lággjalda­flug­fé­lög hafa brugð­ist við þess­ari óskil­virkni með því að fljúga til smærri flug­valla, en það hefur gjör­breytt mark­aðnum fyrir flug. Þetta skrifar Þór­unn Helga­dótt­ir, hag­fræð­ingur hjá Compass Lex­econ í Madríd, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Kerfið hyglir eldri flug­fé­lögum

Í grein sinni fer Þór­unn yfir stýr­ingu evr­ópska flugnets­ins og hag­ræn áhrif þess, auk áhrif­anna sem inn­koma lággjalda­flug­fé­laga hefur haft á mark­að­inn á síð­ustu árum. Sam­kvæmt henni hefur kerfið sem er notað til að úthluta afgreiðslu­tímum á flug­völlum í álf­unni verið gagn­rýnt fyrir að hamla sam­keppni og nýt­ast einkum eldri flugfélögum.

Auglýsing

Í kerf­inu búa eldri flug­fé­lög, sem fengu upp­haf­lega úthlutað afgreiðslu­tímum á mik­il­vægum tengi­höfnum líkt og Charles de Gaulle í París eða Heat­hrow í London, yfir miklum verð­mætum þar sem þau hafa for­gangs­rétt að sínum pláss­um. Þetta gerir lággjalda­flug­fé­lög­unum erfitt fyrir að ná afgreiðslu­tíma á stóru flug­völl­un­um.

„Drauga­flug“ eru sam­keppn­is­hamlandi

Réttur flug­fé­lag­anna til að halda sínum afgreiðslu­tíma hefur hins vegar verið í hættu vegna lít­illar eft­ir­spurnar eftir flug­ferðum í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins, en sam­kvæmt úthlut­un­ar­kerf­inu þurfa þau að nýta ákveðið hlut­fall af sínum lend­ing­ar- og brott­far­ar­tím­um. Vegna þess hafa félögin tekið upp á því að fljúga tómum vélum á milli flug­valla í svoköll­uðum „drauga­flug­um“.

„Slík flug fela aug­ljós­lega í sér mikla sóun og stang­ast á við umhverf­is­mark­mið Evr­ópu­sam­bands­ins að draga úr los­un,“ segir Þór­unn í grein­inni sinni. Einnig bendir hún á að athæfið sé sam­keppn­is­hamlandi og þar af leið­andi skað­legt neyt­end­um, þar sem það kemur í veg fyrir að önnur flug­fé­lög geti nýtt sér afgreiðslu­tím­ana.

Betri sæta­nýt­ing með litlum flug­fé­lögum

Svar lággjalda­flug­fé­lag­anna við þessu sam­keppn­is­hamlandi úthlut­un­ar­kerfi er að lenda á svoköll­uðum auka­flug­völl­um, líkt og Gatwick hjá London og Orly hjá Par­ís, þar sem lend­inga­gjöld eru almennt lægri og ólík­legra er að tafir verði á flugi vegna minni umferð­ar.

Þórunn Helgadóttir, hagfræðingur hjá Compass Lexecon í Madríd.

Þór­unn segir inn­komu lággjalda­flug­fé­laga hafa gjör­breytt mark­aðnum fyrir flug með því að bjóða upp á tíðar ferðir á lágu verði sem byggir oft­ast á beinu flugi milli áfanga­staða. Sæta­nýt­ing er einnig betri hjá lággjalda­flug­fé­lög­um, sem leiðir til þess að útblástur á hvern seldan sæt­iskíló­metra hefur dreg­ist sam­an.

Þó bætir Þór­unn við að túlka þurfi þessar tölur var­lega þar sem flug­um­ferð hafi auk­ist vegna til­komu lággjalda­flug­fé­laga, en með meiri flug­um­ferð hefur losun á kolefn­is­út­blæstri sömu­leiðis auk­ist.

Áhuga­vert útspil hjá PLAY

Þór­unn nefnir einnig áform PLAY um að hefja flug til New York í grein­inni sinni, þar sem flug­fé­lagið hyggst fljúga til auka­flug­vallar sem er í nokk­urri fjar­lægð frá borg­inni. Með því segir hún að félagið sé að feta í fót­spor ann­arra lággjalda­flug­fé­laga sem hafa gef­ist upp á bar­átt­unni um afgreiðslu­tíma á stærstu tengi­höfn­unum sem Icelandair hefur aðgang að.

„Það verður áhuga­vert að sjá hvernig far­þegar bregð­ast við þessu útspil­i,“ segir Þór­unn og bætir við að lend­ing­ar­gjöld eigi að vera um 80 pró­sentum lægri á auka­flug­vell­inum heldur en á öðrum flug­völlum í New York. „Hvort það sé nóg til að vega upp á móti smærri mark­aði sem þeim býðst á auka­flug­velli þarf tím­inn að leiða í ljós,“ segir hún einnig.

Hægt er að lesa grein Þór­unnar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent