Ólöf Helga Adolfsdóttir varaformaður Eflingar hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns stéttarfélagsins til næstu tveggja ára, og gefur hún kost á sér til setu í stjórn Eflingar á þeim lista sem uppstillingarnefnd mun setja saman.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Ólöfu Helga sendi á fjölmiðla í dag en stjórnarkosning í Eflingu, þar með talin kosning nýs formanns, mun fara fram fyrir 15. febrúar næstkomandi.
„Ég hef verið virk í verkalýðsbaráttunni undanfarin ár og setið í stjórn Eflingar frá árinu 2019. Frá því í byrjun nóvember sl. hef ég gegnt embætti varaformanns og starfað ásamt Agniezsku Ewu Ziólkowsku að því að halda starfsemi Eflingar gangandi í gegnum róstursama tíma eftir að þáverandi formaður félagsins sagði af sér embætti og framkvæmdastjóri sagði upp störfum,“ segir hún og vísar í þær vendingar sem áttu sér stað innan Eflingar á síðasta ári þar sem Sólveig Anna Jónsdóttir, þáverandi formaður félagsins, og framkvæmdastjórinn, Viðar Þorsteinsson, hættu störfum eftir deilur innan félagsins.
Fram kemur hjá Ólöfu Helgu að hún hafi verið virk í verkalýðsmálum í starfi hennar sem hlaðmaður á Reykjavíkurflugvelli en þar vann hún í fimm ár og gegndi embætti trúnaðarmanns þar til henni var sagt upp störfum.
„Það er erfitt að missa vinnuna og framfærsluna, ekki síst fyrir okkur sem höfum eingöngu starfað í láglaunastörfum og eigum því ekki borð fyrir báru þegar í harðbakkann slær. En það er líka sárt að vera vísað á dyr af óljósum ástæðum, sem virðast ekki vera aðrar en þær að ég sinnti hlutverki trúnaðarmanns af alúð á tímum þar sem vegið var að kjörum og réttindum starfsfólks. Við þessar aðstæður átti ég skjól hjá mínu stéttarfélagi sem reis upp mér til varnar. Ég þekki því af eigin raun hversu mikilvæg öflug og skipulögð verkalýðshreyfingin er launafólki andspænis ægivaldi fyrirtækja og samtaka atvinnurekenda,“ segir í tilkynningunni.
Segist hún bjóða sig fram til formanns Eflingar því hún hafi áhuga á að beina öllum kröftum sínum að verkalýðsbaráttu.
„Ásamt stjórn, samninganefnd og trúnaðarráði vil ég leiða Eflingu – næststærsta stéttarfélag landsins og stærsta félag verka- og láglaunafólks – í gegnum kjarasamninga sem eru lausir síðar á þessu ári.
Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja stöðu trúnaðarmanna og efla þá í starfi. Ég vil halda áfram því öfluga starfi sem Efling hefur unnið að síðustu ár og lýtur m.a. að þjónustu við erlenda félagsmenn og þátttöku þeirra í starfi hreyfingarinnar. Ég vil takast á við vanda ungs fólks á vinnumarkaði og þeirra sem eru utan náms og vinnu af fullum þunga. Síðast en ekki síst vil ég vinna að því ásamt stjórn og skrifstofu að efla þjónustu við félagsmenn enn frekar, byggja upp fræðslustarf, auka lýðræði innan félagsins og tryggja aðgengi félaga að upplýsingum um starfsemi Eflingar,“ segir hún enn fremur í tilkynningunni.