Páll hættir sem ráðuneytisstjóri og Erna Kristín tekur við keflinu

Nýtt skipulag mennta- og barnamálaráðuneytis tók gildi í dag og mun Erna Kristín Blöndal taka við af Páli Magnússyni sem ráðuneytisstjóri.

Páll Magnússon og Erna Kristín Blöndal
Páll Magnússon og Erna Kristín Blöndal
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son mennta- og barna­mála­ráð­herra hefur skipað Ernu Krist­ínu Blön­dal, skrif­stofu­stjóra, í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra frá og með deg­inum í dag. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins en í henni er nýtt skipu­lag mennta- og barna­mála­ráðu­neytis kynnt.

Erna Kristín tekur við af Páli Magn­ús­syni, sem fer til starfa hjá fasta­nefnd Íslands í Genf og mun þar starfa á sviði mál­efna barna, meðal ann­ars við að efla alþjóð­legt sam­starf íslenskra stjórn­valda hvað varðar vel­ferð og rétt­indi barna en einnig á sviði alþjóða­vinnu­mála og alþjóða­heil­brigð­is­mála, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

„Erna er með BA- og meistara­gráðu í lög­fræði frá Háskóla Íslands, býr yfir mik­illi reynslu af störfum innan Stjórn­ar­ráðs­ins og íslenskrar stjórn­sýslu og hefur haldið utan um stór verk­efni á vegum íslenskra stjórn­valda. Hún hefur gegnt emb­ætti skrif­stofu­stjóra síðan 2019, fyrst á skrif­stofu barna- og fjöl­skyldu­mála hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu (nú félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyti) og nú síð­ast skrif­stofu barna­mála í mennta- og barna­mála­ráðu­neyti.

Áður var Erna verk­efna­stjóri hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu 2018-2019 þar sem hún leiddi vinnu um end­ur­skoðun á mál­efnum barna, fram­kvæmda­stjóri nor­rænnar stofn­unar um fólks­flutn­inga 2016-2018 og lög­fræð­ingur og verk­efna­stjóri hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu (nú dóms­mála­ráðu­neyt­inu) frá 2009-2016, m.a. sem sér­fræð­ingur þverpóli­tískrar þing­manna­nefndar um end­ur­skoðun útlend­inga­laga. Auk þessa hefur hún sinnt ýmsum nefnd­ar- og stjórn­ar­störfum og m.a. setið í stjórn og verið stjórn­ar­for­maður UNICEF á Ísland­i,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Kærði ráðn­ingu Páls

Mikið var rætt um ráðn­ingu Páls á sínum tíma en Lilja Alfreðs­dótt­ir, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, ákvað að skipa Pál sem ráðu­neyt­is­stjóra í byrjun nóv­em­ber 2019.

Páll hafði gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn um ára­bil en í til­kynn­ingu Lilju um ráðn­ing­una kom fram að það hefði verið mat ráð­herra að hann væri hæf­astur umsækj­enda til að stýra ráðu­­neyt­inu næstu fimm árin og leiða það umbóta­­starf sem væri í far­vatn­in­u.

Haf­­dís Helga Ólafs­dóttir var á meðal þeirra sem sóttu um starf ráðu­­neyt­is­­stjóra í mennta­­mála­ráðu­­neyt­inu þegar það var aug­lýst árið 2019. Haf­­dís Helga kærði ráðn­ingu Páls til kæru­­nefndar jafn­­rétt­is­­mála þar sem hún taldi ljóst að reynslu­minni og minna mennt­aður karl­­­maður hefði verið ráðin í starfið sem hún sótt­­­ist eft­­­ir. Gögnin hefðu sýnt að ráðn­­­ing­­­ar­­­ferlið hefði ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga og reglna og Haf­­­dís Helga taldi sig ekki hafa fengið sann­­­gjarna og óhlut­­­dræga með­­­höndlun af hálfu ráðu­­­neyt­is­ins.

Ráð­herr­ann braut jafn­rétt­islög

Kæru­­nefndin komst að þeirri nið­­ur­­stöðu að Lilja hefði brotið jafn­­rétt­is­lög með ráðn­­ingu Páls. Lilja ákvað að íslenska ríkið myndi stefna Haf­­dísi Helgu per­­són­u­­lega til að fá úrskurð kæru­­nefnd­­ar­innar ógild­­an.

Í mars í fyrra hafn­aði hér­­­aðs­­­dómur Reykja­víkur öllum máls­á­­­stæðum Lilju og sagði í nið­­­ur­­­stöðu sinni að ekki hafi verið fyrir hendi neinir „ann­­­markar á máls­­­með­­­­­ferð kæru­­­nefnd­­­ar­innar sem leitt geti til ógild­ingar á úrskurði henn­­­ar“.

Lilja ákvað að áfrýja dómnum rúmum fjórum klukku­­­stundum eftir að hann hafði fall­ið. Þar með lá fyrir að málið yrði í áfrýj­un­­ar­­ferli að minnsta kosti fram yfir þing­­kosn­­ing­­ar, sem fram fóru 25. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn.

Eftir kosn­­ing­­arnar end­­ur­nýj­uðu fyrri stjórn­­­ar­­flokkar sam­­starf sitt en mála­­rekstur Lilju gegn Haf­­dísi Helgu varð eftir í nýju barna- og menn­ing­­ar­­mála­ráðu­­neyti sem Ásmundur Einar Daða­­son, flokks­bróðir Lilju, sett­ist í. Kjarn­inn leit­aði eftir upp­­lýs­ingum um afstöðu hans til mála­­rekst­­ur­s­ins í byrjun des­em­ber í fyrra en fékk engin svör.

Íslenska ríkið féll frá mála­rekstr­inum

Í byrjun febr­­úar kom málið nokkuð óvænt inn á dag­­skrá Lands­rétt­­ar. Mál­­flutn­ingur skyldi fara fram 28. febr­­úar 2022.

Í aðdrag­anda þessa höfðu átt sér stað umtals­verð sam­­skipti milli máls­að­ila þar sem lög­­­maður Haf­­dísar Helgu, Áslaug Árna­dótt­ir, kall­aði eftir upp­­lýs­ingum um hvað ráðu­­neyti Ásmundar Ein­­ars ætl­­aði að gera. Þegar málið var komið á dag­­skrá Lands­réttar varð meira knýj­andi að fá svar frá ráðu­­neyt­inu og settum rík­­is­lög­­manni. Tím­inn leið.

Svörum var lofað í byrjun febr­­ú­­ar, en þau bár­ust ekki. Svo áttu þau að ber­­ast viku síð­­­ar, en gerðu það ekki. Loks lá fyrir að Ásmundur Einar myndi láta aft­­ur­­kalla mála­­rekst­­ur­inn en það var ekki gert for­m­­lega fyrr en 24. febr­úar með sam­komu­lagi, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Og ekki gert opin­bert fyrr en 25. febr­úar þegar málið var tekið út af dag­­skrá Lands­rétt­­ar, síð­­asta virka dag áður en að mál­­flutn­ingur átti að fara fram í Lands­rétti.

Samið um miska­bætur

Haf­­dís Helga gat ekki sótt skaða­bætur vegna þess að ekki lá fyrir að hún hefði fengið starf ráðu­­neyt­is­­stjóra ef Páll, sem hefur gegnt mýmörgum trún­­að­­ar­­störfum fyrir Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn og bauð sig eitt sinn fram til for­­mennsku í hon­um, hefði ekki verið ráð­inn. Af þeim þrettán sem sóttu um emb­ættið mat hæf­is­­nefnd fjóra umsækj­endur mjög hæfa til að gegna því og Lilja tók þá fjóra í við­­tal. Á meðal þeirra var Páll en ekki Haf­­dís Helga. Ógjörn­ingur var því að sýna fram á að Haf­­dís Helga hefði verið tekin fram fyrir þá tvo sem út af stóðu í mjög hæfa hópnum til að sækja skaða­bætur vegna tekju­taps, sem hefði verið mis­­mun­­ur­inn á launum ráðu­­neyt­is­­stjóra og núver­andi starfi hennar út starfs­­fer­il­inn, út frá fyr­ir­liggj­andi gögn­­um. Þess vegna var samið um miska­bæt­­ur.

Kostn­að­­­­ur­ rík­­­is­ins við rekstur máls­ins fyrir hér­­­­aðs­­­­dómi nam alls 8,7 millj­­­­ónum króna. Áætlað var að kostn­aður vegna áfrýj­unar til Lands­réttar yrði á bil­inu 900 þús­und krónur til 1,2 millj­­­­ónir króna án virð­is­auka­skatts. Til við­­bótar bæt­t­ist sá kostn­aður sem féll til vegna greiðslu miska­­bóta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent