Ráðherra og Seðlabanki fá frest til 30. september

mynd-með-seðlabanka.jpg
Auglýsing

Frestur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Seðla­banka Íslands til að veita sam­þykki sitt, eða hafna, sam­komu­lagi um leng­ingu á greiðslum skulda­bréfs milli Lands­bank­ans og slita­stjórnar gamla Lands­bank­ans hefur verið fram­lengdur til 30. sept­em­ber. Upp­haf­lega átti nið­ur­staða að liggja fyrir í síð­asta lagi 8. ágúst, sem var síð­ast­lið­inn föstu­dag. Þetta hefur feng­ist stað­fest hjá slita­stjórn Lands­bank­ans.

Þann 5. maí var til­kynnt að sam­komu­lag hefði náðst milli Lands­bank­ans og slita­stjórnar gamla Lands­bank­ans um breyt­ingu á upp­gjörs­skulda­bréfum með eft­ir­stöðvar að jafn­virði 226 millj­örðum króna í erlendum gjald­eyri. Upp­haf­lega átti að greiða skulda­bréfin upp fram til árs­ins 2018. Löngu var orðið ljóst að það myndi setja þungar byrðar á íslenskt sam­fé­lag þar sem greiðslur í erlendum gjald­eyri næstu árin vegna bréf­anna væru mun meiri en gjald­eyr­is­tekjur hag­kerf­is­ins myndu ráða við, sér­stak­lega þegar tekið er til­lit til allra ann­arra greiðslna sem íslenska rík­ið, sveita­fé­lög og fyr­ir­tæki þurfa að greiða í erlendum myntum á tíma­bil­inu.

Í sam­komu­lag­inu fólst að greiðslu­tími bréf­anna yrðu lengdur fram til októ­ber 2026. Sam­komu­lagið var að margra mati, sér­stak­lega samn­ings­að­il­anna, und­an­fari að því að létt yrði á fjár­magns­höft­um.

Auglýsing

Fyrir hefur legið að bæði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, og Seðla­banki Íslands, þurfi að sam­þykkja sam­komu­lagið áður en það tekur gildi. Frestur var gefin til 8. ágúst til að þeir aðil­ar, og sér­fræð­ingar á þeirra veg­um, gætu skoðað áhrif og afleið­ingar sam­komu­lags­ins á íslenskt hag­kerfi og áætl­anir þeirra um létt­ingu hafta.

Nú er ljóst að sá tími hefur ekki verið nægj­an­legur og samn­ings­að­ilar hafa veitt ráð­herr­anum og Seðla­bank­anum aukin frest til að kom­ast að niðu­stöð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None