Ráðuneyti leiðréttir sig: Framboðum ekki skylt að skrá sig sem stjórnmálasamtök

Þvert á það sem dómsmálaráðuneytið sagði í gær er þeim stjórnmálasamtökum sem ætla að bjóða fram til sveitarstjórna í vor ekki skylt að skrá sig formlega sem stjórnmálasamtök hjá Ríkisskattstjóra fyrir kosningar.

Stjórnmálasamtök þurfa ekki að skrá sig formlega sem slík fyrir kosningar, en þurfa hins vegar að skrá sig ef þau ætla að fjárframlög frá sveitarfélögum eftir kosningar.
Stjórnmálasamtök þurfa ekki að skrá sig formlega sem slík fyrir kosningar, en þurfa hins vegar að skrá sig ef þau ætla að fjárframlög frá sveitarfélögum eftir kosningar.
Auglýsing

Þeim stjórn­mála­sam­tökum sem hyggj­ast bjóða sig fram til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga í vor er ekki skylt að skrá sig form­lega sem stjórn­mála­sam­tök fyrir kosn­ing­arn­ar, sam­kvæmt upp­færðri frétta­til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Í til­kynn­ing­unni, sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í gær, sagði upp­haf­lega að sam­tök sem ætl­uðu sér að bjóða fram lista til sveit­ar­stjórna þyrftu að skrá sig form­lega sem stjórn­mála­sam­tök og talað um þau nýnæli sem fylgi­fisk þess að ný kosn­inga­lög hefðu tekið gildi um síð­ustu ára mót.

En þetta var „mis­sagt“ í til­kynn­ing­unni sem birt­ist í gær, segir ráðu­neyt­ið.

Skrán­ing stjórn­mála­sam­taka er þannig ekki for­taks­laus skylda fyrir þau sam­tök sem ætla að bjóða fram til sveit­ar­stjórna 14. maí næst­kom­andi.

Þurfa að skrá sig ef þau ætla að fá fjár­fram­lög

Hins vegar er, að sögn ráðu­neyt­is­ins, skylda fyrir stjórn­mála­sam­tök að skrá sig sem slík hjá Rík­is­skatt­stjóra ef þau ætla að þiggja fjár­fram­lög frá sveit­ar­fé­lög­um, en þeir flokkar sem eiga full­trúa í sveit­ar­stjórnum eða fá að minnsta kosti 5 pró­sent atkvæða í kosn­ingum fá slík fram­lög.

Auglýsing

Kjarn­inn sagði frá efni til­kynn­ingar ráðu­neyt­is­ins í gær og sömu­leiðis því að sem stendur eru ein­ungis Við­reisn og Sam­fylk­ingin form­lega skráð sem stjórn­mála­sam­tök í sér­stakri stjórn­mála­sam­taka­skrá sem birt er á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Ákvæði um að stjórn­­­mála­­sam­tök geti skráð sig sér­­stak­­lega sem slík hjá Rík­­is­skatt­­stjóra var bætt inn í lög um starf­­semi stjórn­­­mála­­sam­­taka í fyrra.

Í þeim lögum segir að Rík­­is­skatt­­stjóri skrái stjórn­­­mála­­sam­tökin og starf­ræki í því skyni stjórn­­­mála­­sam­taka­­skrána, sem birt skuli almenn­ingi á vef stjórn­­­ar­ráðs­ins ásamt upp­­lýs­ingum sem fylgi umsóknum stjórn­­­mála­­sam­tak­anna um skrán­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent