Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi og aðalmaður í stjórn Samtaka atvinnulífsins, ætlar ekki að þiggja 33,3 prósent launahækkun fyrir að sitja í stjórn HB Granda. Hún segir í tilkynningu að eftir á að hyggja sé hækkunin á milli ára ekki í takti við stöðu kjaramála á Íslandi og því muni hún ekki þiggja hana.
Í tilkynningu sinni segir Rannveig að þar sem gagnrýni á ákvörðun hluthafa HB Granda um þóknun til stjórnar fyrirtækisins hafi að hluta til beinst sérstaklega að sér vegna, stöðu hennar í stjórn Samtaka atvinnulífsins, vilji hún taka fram að hluthafar hafi samþykkt tilögu stjórnar um þóknun stjórnarmanna með öllum greiddum atkvæðum. Hún sé ekki hluthafi. "Á milli aðalfunda urðu þær breytingar hjá HB Granda að fyrirtækið var skráð á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland. Það felur í sér að meira reynir á stjórnarhætti fyrirtækisins en áður, sem ekki er óeðlilegt að endurspeglist að einhverju leyti í þóknun stjórnar. Þrátt fyrir hækkunina er þóknun stjórnarmanna hjá HB Granda sú næstlægsta meðal fyrirtækja á Aðallistanum. Eftir á að hyggja er hækkunin á milli ára hins vegar úr takti við stöðu kjaramála á Íslandi. Ég hef því ákveðið að þiggja hana ekki."
Harðlega gagnrýnt víða
Ákvörðun HB Granda um hækkun launa stjórnarmanna um svo hátt hlutfall hefur verið harðlega gagnrýnd víða. Stjórn stéttarfélagsins Eflingar sendi til að mynda frá sér ályktun í dag þar sem segir: „Sú ákvörðun stjórnar HB Granda á síðasta aðalfundi að hækka stjórnarlaun fyrirtækisins um 33% kemur eins og blaut tuska framan í starfsmenn fyrirtækisins og launafólk í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir þar sem Samtök atvinnulífsins hafa boðið launafólki tíunda hluta þessa fjárhæðar í launahækkun."
Í tilkynningunni segir að ákvörðun aðalfundar HB Granda lýsi „bæði taktleysi og siðleysi gagnvart fólkinu á gólfinu sem hefur byggt upp HB Granda með vinnu sinni og aukinni framleiðslu ár eftir ár.“ Er ákvörðunin sögð vera algjörlega „óboðleg“.
Efling fordæmir einnig ákvörðun stjórnar HB Granda fyrir þær arðgreiðslur sem fyrirtækið hefur ákveðið að færa eigendum sínum á síðasta aðalfundi fyrirtækisins. „Í stað þess að fyrirtækið deili ávinningnum af uppbyggingu og arðsemi af rekstri með starfsmönnum sínum, hafa eigendur ákveðið að taka allan arðinn sem deilt er út í eigin vasa,“ segir í tilkynningu Eflingar.
Forsætisráðherra segir þetta kolröng og óábyrg skilaboð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra gagnrýndi hækkanirnar líka í ræðu sinni á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. Þar sagði hann að tugprósenta hækkun stjórnarlauna í fyrirtækjum vera "kolröng og óábyrg skilaboð inn í samfélagið á þessum tíma. Við þurfum sameiginlega að byggja upp þjóðfélag festu og stöðugleika og slíkar hækkanir hjálpa ekki til við það.“
Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda, hefur hins vegar varið ákvörðunina. Hann sagði í samtali við RÚV í gær að ekki komi til greina að draga ákvörðun um aðgreiðslu og þriðjungshækkun á þóknun stjórnarmanna til baka. „Ég held að það sé ekkert óhóf í þessu að mínu mati, og ef þú færir yfir listann í þessu í Kauphöllinni þá held ég að Grandi sé í einu af neðstu sætunum,“ sagði Kristján.