Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, segi að ekki dugi að fordæma ofbeldi almennum orðum en „fara eins og köttur í kringum heitan grautinn við að gera eitthvað í alvöru“. Þetta kom fram í máli þingmannsins undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær en með þessum orðum gagnrýnir hann yfirlýsingu Íslands á fundi öryggisráðsins í vikunni varðandi varðandi árásir Ísraelshers á Palestínu.
Hóf hann mál sitt á að segja að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hefðu ítrekað sagt undanfarna daga að stefna Íslands varðandi árásir Ísraelshers á Palestínu væri skýr. Spurði hann í framhaldinu hvernig þessi stefna birtist í raun og veru og vitnaði í yfirlýsingu Íslands en í henni segir að Ísland fordæmi harðlega allar árásir á almenna borgara. Eldflaugaárásir frá Gaza á almenna borgara í Ísrael séu aldrei réttlætanlegar og „þótt við viðurkennum rétt Ísraels til sjálfsvarnar þá verðum við að krefjast þess að gætt sé ýtrustu aðgátar og meðalhófs í valdbeitingu“.
Þingmaðurinn benti á að þarna væri vissulega ofbeldi fordæmt almennum orðum. Hins vegar væri Ísraelsher sýndur mikill skilningur og hann í raun einungis beðinn að hemja sig aðeins.
Eigi að svelta flóttafólk til hlýðni
„Hvað sem þetta er þá er þetta ekki skýr stefna um stuðning Íslands við palestínsku þjóðina. En hvað með hérna heima fyrir? Hvað með til dæmis samstöðu með þeim einstaklingum sem hafa þurft að flýja átökin? Undanfarna daga hafa hellst yfir okkur fréttir af umsækjendum um alþjóðlega vernd sem íslensk stjórnvöld ætla að endursenda til Grikklands. Í þeim hópi er meðal annars fólk sem fyrst flýði ástandið í Gaza, fékk hæli á Grikklandi en þurfti aftur að leggja á flótta úr ónýtu verndarkerfi Grikklands,“ sagði hann.
Andrés Ingi sagði jafnframt að íslensk stjórnvöld ætluðu ekki einu sinni að sýna þessu fólki þá virðingu að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar.
„Hvernig birtist stefna Íslands gagnvart þessu fólki?“ spurði hann enn fremur og bætti því við að nú væru tíu umsækjendur um alþjóðlega vernd komnir á götuna eftir að Útlendingastofnun henti þeim út og svipti þá framfærslu.
„Skítt með mannúð og mannréttindi. Það á að svelta þetta flóttafólk til hlýðni þannig að það sé hægt að pína það aftur í óboðlegar aðstæður í gríska hæliskerfinu. Hér er stefna Íslands: Út á guð og gaddinn,“ sagði þingmaðurinn.