„Nauðsynlegt er að tryggja að framhald aðildarviðræðna við ESB (Evrópusambandið) verði lagt í dóm þjóðarinnar.“ Svo segir í fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins (SI) sem send var fjölmiðlum í morgun.
Þá segir í tilkynningunni: „Ferli ákvarðana ríkisvaldsins á að vera opið og byggjast á málefnalegri nálgun þannig að fólk og fyrirtæki geti verið sátt við afgreiðslu þótt þau séu ekki endilega sammála endanlegri niðurstöðu. Opinber umræða undanfarna daga um stöðu aðildarumsóknar Íslands að ESB er því miður ekki dæmi um málefnalega nálgun.“
Frjáls og óhindruð viðskipti og aðgangur að erlendum mörkuðum eru lífæð íslenskra fyrirtækja að mati SI. Þar skipti EES-samningurinn sköpum en óvíst sé hvort hann einn og sér þjóni hagsmunum Íslands til lengri tíma litið.
Í tilkynningu SI er haft eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur formanni samtakanna: „Það eru 1.300 fyrirtæki innan vébanda Samtaka iðnaðarins. Það er ljóst að alþjóðasamningar hafa mikil áhrif á rekstrarumhverfi þeirra, en mismikið þó. Því eru skoðanir þeirra skiptar um aðild að Evrópusambandinu, en sameiginlega trúum við að lýðræðislegt ferli sé best til þess fallið að leiða málið til lykta. Málið þarf að vinnast þannig að sátt geti skapast um niðurstöðuna.“