Segir fáránleika kröfu Guðmundar um afsögn varaformanns Eflingar „óbærilega“ ógeðslegan

Sólveig Anna Jónsdóttir segir varaformann Eflingar vera fyrsta raunverulega fulltrúa aðflutts verkafólks í verkalýðsbaráttunni, en um helmingur félagsfólk í Eflingu er aðflutt fólk.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska
Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska
Auglýsing

Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Efl­ingu, sagði í Kast­ljósi í gær að hann teldi að Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara­for­maður Efl­ing­ar, ætti að segja af sér líkt og Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður félags­ins, og Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri þess, hafa valið að ger­a. 

Sól­veig Anna bregst við þess­ari kröfu í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag og segir að þótt henni hafi ekki verið hlátur í huga yfir við­tal­inu við Guð­mund þá hafi hún ekki getað annað en hlegið „agn­arsmá­um“ hlátri þegar þessi orð féllu. „Ég hugs­aði um „afreka­lista" hans í störfum fyrir félagið og fólkið sem til­heyrir því, og svo hvað Agnieszka hefur gert og þess­vegna hló ég í örskamma stund. Fárán­leiki þess að þessi maður væri að krefj­ast þess að hún léti sig hverfa var svo yfir­gengi­leg­ur. En auð­vitað fyrst og síð­ast svo óbæri­lega ógeðs­leg­ur.“

Hún segir að Agnieszka sé fyrsti raun­veru­legi full­trúi aðflutts verka­fólks í verka­lýðs­bar­átt­unni, en um helm­ingur félags­fólk Efl­ingar er aðflutt fólk. Með kjöri hennar hafi í fyrsta skipti verið sett mann­eskja í ábyrgð­ar­hlut­verk sem til­heyrir þeim hópi. „Hún þekkir allt það sví­virði­lega rugl sem við­gengst gagn­vart aðfluttu verka­fólki á eigin skinni. Allt. Hún hef­ur, ásamt mér og þeim í stjórn sem raun­veru­lega hafa viljað bæta hag alls vinnu­aflsins, ekki bara hag þeirra sem líta út og tala eins og þeir sjálfir, leitt stór­kost­lega umbóta vinnu innan félags­ins þegar kemur að því að tryggja að okkar aðfluttu félagar eigi rétt á nákvæm­lega sömu þjón­ustu og þau okkar sem fædd eru hér. [...] Og svo dirf­ist ein­hver maður að segja henni að láta sig hverfa. Ég myndi leggja til að hann skamm­að­ist sín en ég veit af mik­illi reynslu að það kann [hann] ekki.“

Í Kast­ljósi í gær­kvöld krafð­ist Guð­mundur Bald­urs­son þess að Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara­for­maður Efl­ing­ar, segði af...

Posted by Sól­veig Anna Jóns­dóttir on Tues­day, Novem­ber 2, 2021

Logar allt í ill­deilum

Sól­veig Anna sagði af sér á sunnu­dag og Viðar fylgdi eftir með upp­sögn í gær. For­sagan af þeim deilum sem urðu til þess er að í júní sam­­­­þykktu starfs­­­­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­­­­lega. Í henni voru stjórn­­­­endur stétt­­­­ar­­­­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­­­­fólki. Trún­­­­að­­­­ar­­­­menn starfs­­­­manna und­ir­­­­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­­­­manna. 

Auglýsing
Á fimmt­u­dag birti RÚV svo við­­­­tal við Guð­­­­mund Bald­­­­ur­s­­­­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­­­ars um að starfs­­­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­­­ar­­­­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­­­­veig Anna starfs­­­­menn á föst­u­­­­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér. 

Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­­­­gjarnt að stjórn­­­­endur veltu ábyrgð á inn­­­­an­hús­­­­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sól­­­veig Anna af sér og sagði starfs­­menn Efl­ingar hafa hrakið sig úr starfi.

Guð­­mundur sendi frá sér yfir­­lýs­ingu í gær þar sem hann sagði að Sól­­­veig Anna hafi „haldið lyk­il­­­upp­­­lýs­ingum leyndum frá stjórn­­­inni til að hylma yfir van­líðan starfs­­­fólks á skrif­­­stofu Efl­ing­­­ar“ með því að neita að kynna fyrir stjórn­­­inni starfs­loka­­­samn­ing við fyrr­ver­andi skrif­­­stofu­­­stjóra Efl­ingar í upp­­­hafi þessa árs.

Allir eft­ir­stand­andi með­­limir stjórnar Efl­ingar nema þrír, alls ell­efu manns, sendu í kjöl­far­ið  frá sér yfir­­lýs­ingu þar sem þau hvöttu Guð­­mund til að segja af sér stjórn­­­ar­­mennsku. Þau hvöttu hann auk þess til að „láta verða af hug­­myndum sínum um stofnun nýs klofn­ings­-­­stétt­­ar­­fé­lags.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent