Hersir Sigurgeirsson dósent í fjármálum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands hefur ákveðið að ljúka aðkomu sinni að úttekt á útboði og sölu á 22,5 prósent hlut ríkisins í Íslandsbanka eftir að hafa fengið símtal frá ríkisendurskoðanda sem sagði honum að borist hefði bréf frá Bankasýslu ríkisins með ábendingu um að hann hefði sett „like“ á tiltekna færslu á Facebook sem varðaði útboðið.
Frá þessu greinir hann í stöðuuppfærslu á Facebook í dag.
Hersir rekur atburðarásina í færslunni og segir að ríkisendurskoðandi hafi haft samband við hann þann 11. apríl síðastliðinn og óskað eftir því að hann yrði Ríkisendurskoðun til ráðgjafar við úttektina.
Hann segist hafa ákveðið að verða við beiðninni, enda með viðeigandi þekkingu og reynslu vegna starfa á fjármálamarkaði og við Háskóla Íslands – og hafi hann unnið að verkefninu undanfarnar vikur. Hann segir að Bankasýslan, fjármálaráðuneytið og fleiri sem úttektin tekur til hafi verið upplýst um aðkomu hans að henni.
„Í fyrradag fékk ég svo símtal frá ríkisendurskoðanda sem sagði mér að honum hefði borist bréf frá Bankasýslunni með ábendingu um að ég hafi sett „like“ á tiltekna færslu á fb sem varðaði útboðið. Bréfið var alls þrjár síður, sent af starfsmanni Bankasýslunnar og undirritað rafrænt af forstjóra hennar,“ skrifar hann.
„Ég kann ekki við slíkt eftirlit“
Hersir segir að hann hafi tekið að sér þetta verkefni til að leggja sitt af mörkum til að gera úttektina betri. „Þegar forstjóri og starfsmenn Bankasýslunnar eru farnir að verja tíma sínum í að rekja ferðir mínar á samfélagsmiðlum og tilkynna skriflega, rafrænt undirritað, um „like“ finnst mér þó ástæða til að staldra við.
Ég kann ekki við slíkt eftirlit. Það er alvarlegt þegar starfsmenn ríkisstofnunar telja eðlilegt að leggjast í rannsókn á skoðunum ráðgjafa óháðra úttektaraðila og gera það á jafn hæpnum og huglægum forsendum og hér birtast,“ skrifar hann jafnframt.
Hann telur að ekki sé „hægt að setja „like“ við þessi vinnubrögð og ljóst að nauðsynlegt er að opinbera þau“.
„Ég sé ekki aðra skýringu á bréfaskrifum Bankasýslunnar en að hún telji sig geta notað þau til að kasta rýrð á úttekt Ríkisendurskoðunar ef einhverjar niðurstöður hennar verða stofnuninni ekki að skapi. Það hugnast mér ekki og því ákvað ég í gær að ljúka aðkomu minni að úttektinni,“ skrifar hann að lokum.
Kæru vinir, mig langar að segja ykkur örstutt frá starfsháttum Bankasýslunnar sem ég hef fengið að kynnast á undanförnum...
Posted by Hersir Sigurgeirsson on Friday, May 20, 2022
Staðfestir frásögnina en tjáir sig ekki meira um málið
Starfandi ríkisendurskoðandi, Guðmundur Björgvin Helgason, segir í samtali við Kjarnann að Hersir hafi verið ráðinn sem sérfræðingur við gerð úttektarinnar og að hann hafi látið gott af sér leiða á meðan hann starfaði með Ríkisendurskoðun.
Hann staðfestir frásögn Hersis en segist ekki geta tjáð sig frekar um málið. „Þetta er hans upplifun af því sem kom upp og í sjálfu sér engu við það að bæta.“