Sigmundur: „Óæskilegt og raunar afleitt“ að hækka stjórnarlaun nú

sigmundurda.png
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að hækkun á stjórn­ar­launum HB Granda, og fleiri fyr­ir­tækj­um, sé óæski­leg og raunar afleit á allan hátt. Þetta sagði hann í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri grænna, á Alþingi nú í morg­un.

Deil­urnar á vinnu­mark­aði voru mörgum hug­leiknar í þing­inu í morg­un. Katrín Jak­obs­dóttir sagð­ist hafa gríð­ar­legar áhyggjur af stöðu mála á vinnu­mark­aði. Hún nefndi mikla hækkun á launum stjórn­ar­manna í HB Granda sem dæmi, á sama tíma og starfs­fólk hafi verið verð­launað með íspinna. Þetta sagði Katrín vera „eins og úr skáld­sögu eftir Hall­dór Lax­nes. Hvert erum við komin ef þetta er umgjörð kjara­bar­átt­unn­ar?“ Hún spurði Sig­mund Davíð um það á hvaða aðgerðum væri von af hálfu stjórn­valda sem inn­legg í kjara­deil­urn­ar.

Sig­mundur Davíð sagð­ist geta tekið undir allt sem Katrín hefði sagt og hann deildi áhyggjum hennar af stöð­unni sem uppi er. Hann sagði þó að það væru sókn­ar­færi í stöð­unni, og hún væri uppi vegna þess að „loks­ins“ þætti fólki eitt­hvað vera til skipt­anna. Hann sagði rík­is­stjórn­ina til­búna til að legga ýmis­legt á sig til að greiða fyrir mál­um, þótt ekki væri vilji til að „fóðra verð­bólgu­samn­inga.“ Hann sagði að stjórn­völd þyrftu hins vegar að sjá til lands í kjara­við­ræð­unum áður en hægt væri að grípa til aðgerða.

Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætti að tryggja okkur kjöt



Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, gerði kjara­deilur og ástandið á vinnu­mark­aði einnig að umfjöll­un­ar­efni. Verk­föll væru hafin og fleiri yfir­vof­andi, og Guð­mundur tók yfir­vof­andi kjöt­skort vegna verk­falla sér­stak­lega sem dæmi. „Ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er nú til ein­hvers, þá ætti hann nú alla­vega að tryggja okkur kjöt.“

Hann sagði stjórn­endur stórra fyr­ir­tækja senda stríðs­hanska út í sam­fé­lagið með hækk­unum á stjórn­ar­launum og að á vinnu­mark­aði ríki stríðs­á­stand. „Það er mikil reiði í sam­fé­lag­inu og það ríkir tor­tryggni. Mér finnst það að minsta kosti að hluta til vera áfell­is­dómur yfir rík­is­stjórn­inn­i.“ Guð­mundur ræddi um þjóð­ar­sátt­ina og spurði Sig­mund Davíð að því hvort þjóð­ar­sátt­ar­hugs­unin væri ekki dauð. Það tók Sig­mundur Davíð ekki undir og sagði slíka hugsun sér­stak­lega mik­il­væga núna.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None