Sigmundur segir að það eigi ekki refsa þeim sem urðu „fyrir afbroti“ í Klausturmálinu

Formaður Miðflokksins ítrekaði í kvöld þá afstöðu sína að þingmenn hans sem viðhöfðu niðrandi orð um konur og ýmsa þingmenn á Klausturbar í nóvember 2018 væri þolendur í málinu, ekki gerendur.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Auglýsing

For­maður Mið­flokks­ins ítrek­aði í kvöld þá afstöðu sína að þing­menn hans sem við­höfðu niðr­andi orð um konur og ýmsa þing­menn á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018 væri þolendur í mál­inu, ekki ger­end­ur.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist geta varið heilum sjón­varps­þætti í að kvarta yfir með­ferð á sér og sam­flokks­mönnum sínum í Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða. Hann vilji þó frekar ræða fram­tíð­ina en ekki „það að refsa þeim sem verða fyrir afbrot­i.“

Þetta kom fram í þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV í kvöld þar sem Sig­mundur Davíð var við­mæl­andi.

Þegar spyrlar þátt­ar­ins spurðu um hvaða áhrif málið hefði haft á hann sagði Sig­mundur Davíð að mál sem þetta hefðu gríð­ar­lega mikil áhrif á þá ein­stak­linga sem fyrir því verða. „Ekki bara þá sem að lentu í brot­inu beint, heldur líka önnur fórn­ar­lömb glæps­ins. Það er alveg ljóst að við þurfum að verja rétt ein­stak­linga og hlífa þeim við því að verða fyrir svona brotum enda leggjum við áherslu mik­il­vægi þess á að verja per­sónu­frelsi og rétt ein­stak­linga á Ísland­i.“

Sig­mundur Davíð ítrek­aði því þá afstöðu sína að hann og sam­flokks­menn hans sem létu ýmis niðr­andi orð falla um nafn­greint fólk, meðal ann­ars aðra þing­menn, á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018, og voru teknir upp af gesti á barnum sem kom upp­tök­unum til fjöl­miðla, væru þolendur í Klaust­ur­mál­inu, en ekki ger­end­ur. Í sjón­varps­þætti á Hring­braut í síð­asta mán­uði sagði Sig­mundur að honum þætti „ósann­gjarnt ef að menn yrðu látnir gjalda fyrir það að vera þolendur þess sem síðar kom í ljós að var glæp­ur, skipu­lagður glæp­ur.“

Auglýsing
Greint var frá í maí 2019 að stjórn Per­sónu­verndar hefði ekki fall­ist á kröfu þing­manna Mið­flokks­ins um að Bára Hall­dórs­dótt­ir, sú sem tók upp sam­tal þing­mann­anna á Klaust­ur­bar, yrði sektuð vegna hljóð­rit­unar hennar á sam­skiptum þeirra sem fram fóru. Hins vegar tald­ist upp­takan ólög­leg sam­kvæmt per­sónu­vernd­ar­lögum og bæri Báru að eyða henni og senda Per­­són­u­vernd stað­­fest­ingu á að það hefði verið gert eigi síðar en 5. jan­úar 2020. 

Bára varð við því og eyddi upp­tök­un­um.

Siða­nefnd sagði tvo þing­menn hafa brotið siða­reglur

Siða­nefnd Alþingis komst svo að þeirri nið­ur­stöðu sum­arið 2019 að Berg­þór Óla­son og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, hefðu brotið siða­reglur alþing­is­manna með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber 2018.

Aðrir þing­­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­­mund­ur Davíð og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­­son og Ólaf­ur Ísleifs­­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Mið­flokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um að mati nefnd­ar­inn­ar. 

Í áliti siða­nefnd­ar sagði að Berg­þór og Gunn­ar Bragi hafi gerst brot­­leg­ir við siða­regl­ur alþing­is­­manna með um­­mæl­um sem þeir létu falla á Klaustri bar. Siða­nefnd fór yfir ummæli Berg­þórs um Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, Írisi Róberts­dótt­ur, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyj­um, Albertínu Frið­björgu Elí­as­dótt­ur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Lilja Alfreðs­dótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. 

Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Berg­þórs væru „öll af sömu rót­inni sprott­in“. Þau væru ósæmi­leg og í þeim fælist van­virð­ing er lýtur að kyn­ferði þeirra kvenna sem um var rætt. Einnig væru þau til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess.

Nefndin fór einnig yfir ummæli Gunn­ars Braga um Albertínu og Lilju auk Ragn­heiðar Run­ólfs­dótt­ur, fyrr­ver­andi sund­konu. Kom­ist var að sömu nið­ur­stöðu og í máli Berg­þórs, að í ummæl­unum fælist van­virð­ing í garð umræddra kvenna og þau væru til þess fallin að skaða ímynd Alþing­is.

For­sætis­nefnd Alþingis féllst á mat siða­nefnd­ar.

Gunnar Bragi ákvað að vera ekki í fram­boði fyrir kom­andi kosn­ingar en Berg­þór er odd­viti Mið­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent