„Það þarf ekki mikla innsýn eða skilning á stefnu Sjálfstæðisflokksins til að átta sig á því að flokkurinn getur ekki tekið þátt í ríkisstjórn sem heldur áfram að ríkisvæða heilbrigðiskerfið, kemur í veg fyrir samþættingu og samvinnu sjálfstætt starfandi þjónustuaðila og hins opinbera – tekur hagsmuni kerfisins fram yfir hagsmuni sjúkratryggðra (okkar allra) og undirbýr þannig jarðveg fyrir tvöfalt heilbrigðiskerfi, sem er eitur í beinum hvers sjálfstæðis- manns.“
Þetta skrifar Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, í grein sem birtist í Morgunblaðinu í morgun. Svandís Svavarsdóttir – heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks – hefur legið undir ámæli frá þeim sem styðja aukin einkarekstur í heilbrigðiskerfinu fyrir að hafa toga það af krafti í hina áttina, í átt að frekari ríkisrekstri, á yfirstandandi kjörtímabili.
Í grein sem hún skrifaði á Kjarnanum í lok apríl sagði hún meðal annars að markmið þeirrar heilbrigðistefnu sem hún hefur innleitt sé að skapa heilbrigðisþjónustu, þar sem rétt þjónusta er veitt á réttum stað og er aðgengileg óháð efnahag. Tilefni skrifana var mikil gagnrýni sérfræðilækna á það að stjórnvöld vildu ekki semja við þá upp á nýtt á sömu forsendum og áður þar sem það sé ekki raunhæft. „Því er haldið fram að þetta sé skref í þá átt að skapa tvöfalt heilbrigðiskerfi. Ekkert er jafn fjarri lagi,“ skrifaði heilbrigðisráðherra.
Segir ríkisrekna fjölmiðum grafa „undan borgaralegum öflum“
Óli Björn fer yfir fleiri skilyrði sem hann telur að séu fyrir hendi svo að Sjálfstæðisflokkurinn geti tekið þátt í ríkisstjórnarsamstarfi að loknum kosningum í september. Hann segir að með sama hætti geti þingmenn Sjálfstæðisflokks ekki réttlætt stuðning við ríkisstjórn sem haldi sjálfstæðum fjölmiðlum í helgreipum, þar sem hagsmunir ríkis- fyrirtækis gangi framar öllu öðru. „Ríkisrekin fjölmiðlun gengur þvert á hugmyndir hægri manna og grefur undan borgaralegum öflum. Ekki síst þess vegna verður Sjálfstæðisflokkurinn að spyrna við fótum – loksins gæti einhver sagt.“
Frumvarpið var lagt fram eftir að Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, fól þremur fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna í febrúar að rýna lög um RÚV og gera tillögur að breytingum sem líklegar eru til að sætta ólík sjónarmið um starfsemi og hlutverk þess. Páll Magnússon var fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í þeim hópi, sem átti að skila af sér niðurstöðu eigi síðar en 31. mars. Nú, þremur mánuðum síðar, bólar ekkert á þeirri niðurstöðu.
Jákvætt viðhorf til atvinnulífsins skilyrði
Óli Björn lenti í fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Kraganum nýverið og mun því skipa baráttusæti flokksins þar, en Sjálfstæðisflokkurinn er nú með fjóra þingmenn í kjördæminu.
Hann telur fleira til í greininni sem þurfi að taka afstöðu til áður en að Sjálfstæðisflokkurinn ákveður hvort hann taki þátt í myndun nýrrar ríkisstjórnar. „Uppbygging menntakerfisins er eitt. Skynsamleg og sjálfbær nýting náttúruauðlinda annað. Jákvætt viðhorf til atvinnulífsins er skilyrði. Að gera launafólki kleift að taka með beinum hætti þátt í rekstri fyrirtækja er mikilvægt og byggja þannig fleiri stoðir undir fjárhagslegt sjálfstæði heimilanna, er lykillinn að hjarta sjálfstæðismanna. Og fleira skiptir miklu, en verður ótalið að þessu sinni.“