SÍA II, framtakssjóður í rekstri Stefnis, dótturfélags Arion banka, hefur gengið frá kaupum á 35 prósent hlut í Kynnisferðum. Seljandi er fjárfestingafyrirtækið Alfa hf. Samhliða kaupunum koma Steinn Logi Björnsson, forstjóri flugfélagsins Bluebird, og Benedikt Ólafsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni, inn í stjórn félagsins, að því er segir í tilkynningu vegna viðskiptanna, en kaupverð er ekki gefið upp.
„Ferðaþjónusta á Íslandi er í miklum vexti og er orðin ein mikilvægasta atvinnugrein landsins,“ segir Benedikt Ólafsson. „Kynnisferðir eru leiðandi fyrirtæki á sínum markaði og við erum mjög ánægðir með að hafa klárað fjárfestingu í félaginu. Við sjáum frekari tækifæri í rekstri þess á næstu árum og hlökkum til að vinna með öðrum hluthöfum og stjórnendum að framgangi þess,“ segir Benedikt, í tilkynningunni.
„Rekstur Kynnisferða hefur tekið miklum breytingum á liðnum árum og hefur félagið ráðist í umtalsverðar fjárfestingar til að mæta vexti í ferðaþjónustu á Íslandi. Við munum halda áfram að stækka og efla félagið á komandi árum og töldum því rétt að fá inn nýja hluthafa í félagið á þessum tímapunkti. Við fögnum aðkomu nýrra fjárfesta og teljum að innkoma þeirra muni styrkja félagið verulega til framtíðar,“ segir Kristján Daníelsson, forstjóri Kynnisferða, í tilkynningu.
Kynnisferðir er eitt elsta og rótgrónasta fólksflutningafyrirtæki landsins og hefur frá upphafi verið í fararbroddi í skipulögðum dagsferðum um Ísland. Fyrirtækið var stofnað 1968 og er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins með yfir 300 starfsmenn. Stærsti hluti rekstrarins er undir merkjum Reykjavík Excursions sem býður upp á fjölbreyttar dagsferðir auk þess að bjóða upp á ferðir yfir sumartímann og áætlunarakstur til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Bláa lóninu, en fyrirtækið starfrækir einnig bílaleigu undir merkjum Enterprise.
BBA Legal og KPMG veittu kaupendum ráðgjöf við kaupin en ráðgjafar seljenda voru Icora Partners og Atlantik lögmannsþjónusta, að því er segir í tilkynningu.
SÍA II er framtakssjóður í rekstri Stefnis hf. Hluthafar SÍA II samanstanda af lífeyrissjóðum, fjármálafyrirtækjum og fagfjárfestum. Sjóðir á vegum Stefnis hafa fjárfest fyrir um 40 milljarða króna í óskráðum félögum frá árinu 2011.