Sjóður í rekstri Stefnis kaupir 35 prósent hlut í Kynnisferðum

flybus-one.jpg
Auglýsing

SÍA II, fram­taks­sjóður í rekstri Stefn­is, dótt­ur­fé­lags Arion banka, hefur gengið frá kaupum á 35 pró­sent hlut í Kynn­is­ferð­um. Selj­andi er fjár­fest­inga­fyr­ir­tækið Alfa hf.  Sam­hliða kaup­unum koma Steinn Logi Björns­son, for­stjóri flug­fé­lags­ins Bluebird, og Bene­dikt Ólafs­son, for­stöðu­maður sér­hæfðra fjár­fest­inga hjá Stefni, inn í stjórn félags­ins, að því er segir í til­kynn­ingu vegna við­skipt­anna, en kaup­verð er ekki gefið upp.

„Ferða­þjón­usta á Íslandi er í miklum vexti og er orðin ein mik­il­væg­asta atvinnu­grein lands­ins,“ segir Bene­dikt Ólafs­son. „Kynn­is­ferðir eru leið­andi fyr­ir­tæki á sínum mark­aði og við erum mjög ánægðir með að hafa klárað fjár­fest­ingu í félag­inu. Við sjáum frek­ari tæki­færi í rekstri þess á næstu árum og hlökkum til að vinna með öðrum hlut­höfum og stjórn­endum að fram­gangi þess,“ segir Bene­dikt, í til­kynn­ing­unni.

„Rekstur Kynn­is­ferða hefur tekið miklum breyt­ingum á liðnum árum og hefur félagið ráð­ist í umtals­verðar fjár­fest­ingar til að mæta vexti í ferða­þjón­ustu á Íslandi. Við munum halda áfram að stækka og efla félagið á kom­andi árum og  töldum því rétt að fá inn nýja hlut­hafa í félagið á þessum tíma­punkti. Við fögnum aðkomu nýrra fjár­festa og teljum að inn­koma þeirra muni styrkja félagið veru­lega til fram­tíð­ar,“ segir Krist­ján Dan­í­els­son, for­stjóri Kynn­is­ferða, í til­kynn­ingu.

Auglýsing

Kynn­is­ferðir er eitt elsta og rót­grón­asta fólks­flutn­inga­fyr­ir­tæki lands­ins og hefur frá upp­hafi verið í far­ar­broddi í skipu­lögðum dags­ferðum um Ísland. Fyr­ir­tækið var stofnað 1968 og er eitt stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins með yfir 300 starfs­menn.  Stærsti hluti rekstr­ar­ins er undir merkjum Reykja­vík Exc­ursions sem býður upp á fjöl­breyttar dags­ferðir auk þess að bjóða upp á ferðir yfir sum­ar­tím­ann og áætl­un­ar­akstur til og frá Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar  og Bláa lón­inu, en fyr­ir­tækið starf­rækir einnig bíla­leigu undir merkjum Enter­prise.

BBA Legal og KPMG veittu kaup­endum ráð­gjöf við kaupin en ráð­gjafar selj­enda voru Icora Partners og Atl­antik lög­manns­þjón­usta, að því er segir í til­kynn­ingu.

SÍA II er fram­taks­sjóður í rekstri Stefnis hf. Hlut­hafar SÍA II sam­an­standa af líf­eyr­is­sjóð­um, fjár­mála­fyr­ir­tækjum og fag­fjár­fest­um. Sjóðir á vegum Stefn­is hafa fjár­fest fyrir um 40 millj­arða króna í óskráðum félögum frá árinu 2011.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None