Skeljungur tilkynnir um áhugasama kaupendur að P/F Magn

Þegar Strengur gerði yfirtökutilboð í Skeljung fyrir áramót miðuðu áætlanir fjárfestahópsins við að selja ýmsar eignir út úr félaginu til að borga fyrir skuldsetta yfirtöku. Færeyskt dótturfélag er nú í söluferli.

Jón Ásgeir Jóhannesson er stjórnarformaður Skeljungs.
Jón Ásgeir Jóhannesson er stjórnarformaður Skeljungs.
Auglýsing

Áhuga­samir kaup­endur hafa lýst yfir áhuga á að kaupa dótt­ur­fé­lag Skelj­ungs í Fær­eyj­um, P/F Magn. Umræddir aðil­ar, sem eru ekki nafn­greind­ir, gáfu sig fram við fyr­ir­tækja­þjón­ustu Kviku banka eftir að að Skelj­ungur til­kynnti til Kaup­hallar Íslands 24. mars síð­ast­lið­inn að félagið væri að „meta fram­tíð­ar­kosti eign­ar­halds á P/F Magn, dótt­ur­fé­lagi Skelj­ungs í Fær­eyj­u­m.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Skelj­ungur sendi til Kaup­hallar Íslands. 

Í ljósi þessa áhuga hefur Skelj­ungur ákveðið að birta sam­an­tekt úr áætlun P/F Magn fyrir árið 2021 „svo fjár­festar hafi aðgang að fram­an­greindum upp­lýs­ingum á jafn­ræð­is­grunn­i.“

Í sam­an­tekt­inni kemur fram að Heild­ar­tekjur P/F Magn vegna rekstr­ar­árs­ins 2020 námu 15.560 millj­ónum króna og heild­ar­tekjur sam­stæð­unnar voru 41.203 millj­ónir króna. EBITDA P/F Magn á árinu 2020 nam 1.509 millj­ónum króna en EBITDA sam­stæð­unnar nam 2.676 millj­ónum króna.

Ætl­uðu að fjár­magna skuld­setta yfir­töku

Hópur fjár­festa, undir for­ystu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingi­bjargar Pálma­dóttur og undir merkjum Strengs, reyndi að taka yfir Skelj­ung í fyrra. Hóp­ur­inn gerði yfir­tökutil­boð sem í fólst að hann var til­bú­inn að greiða um tíu millj­arða króna fyrir hlutafé ann­arra í félag­inu. Hóp­ur­inn ætl­aði að greiða eitt­hvað eigin fé en meg­in­þorri upp­hæð­ar­innar myndi koma að láni frá tveimur kerf­is­lega mik­il­vægum bönk­um, Íslands­banka og Arion banka. 

Auglýsing
Ef yfir­takan gengi eftir ætl­aði hóp­ur­inn að afskrá Skelj­ung af mark­aði, selja burt fjölda eigna og nota ágóð­ann til að end­ur­greiða bönk­unum tveim­ur. Það sem eftir myndi standa gæti hann svo nýtt í frek­ari fjár­fest­inga­verk­efni í fram­tíð­inn­i. 

Strengur tryggði sér meiri­hluta

Á meðal þeirra eigna sem hóp­ur­inn hafði hug á að selja ef yfir­tökutil­boð­inu yrði tekið var P/F Magn, sem rekur ell­efu smá­sölu- og bens­ín­stöðvar og tvær birgða­stöðvar í Fær­eyjum auk þess sem fyr­ir­tækið dreifir elds­neyti til fyr­ir­tækja, verk­taka og sjáv­ar­út­vegs.

Yfir­tökutil­boð­inu var hafnað af þorra ann­arra hlut­hafa, sem eru að uppi­stöðu íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. 

Það skipti þó ekki miklu máli. Næstu daga eftir að yfir­tökutil­boð­inu var hafnað með afger­andi hætti þá bætti Strengur við eign­ar­hlut sinn í Skelj­ungi með kaupum á mark­aði og á nú rétt yfir helm­ing hluta­fjár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent