Strengur nú kominn með meirihluta í Skeljungi en stærstu eigendur segjast ekki hafa selt

Flestir stærstu eigendanna staðfesta að hafa ekki selt eignarhlut sinn í Skeljungi til fjárfestahópsins Strengs, sem kominn er með meirihluta atkvæða í félaginu.

skeljungur
Auglýsing

Fjár­festa­hóp­ur­inn Strengur hefur nú náð meira en 50 pró­sentum atkvæða alls hluta­fjár í Skelj­ungi, en eign­ar­hlutur hans í félag­inu nam 38 pró­sentum fyrir viku síð­an. Líf­eyr­is­sjóð­irnir Gildi, Frjálsi, Festa, Stapi og Lífs­verk stað­festa allir að þeir hafi ekki selt hlut sinn í Skelj­ungi til Strengs, auk þess sem tals­menn Birtu segja að hlutur sjóðs­ins í félag­inu hafi ekki minnkað um meira en tvö pró­sent. 

Kjarn­inn hefur fjallað um áform Strengs um yfir­töku á Skelj­ungi, en hóp­ur­inn bauðst til þess að kaupa alla útistand­andi hluti félags­ins á 8,3 krónum á hlut. Ein­ungis rúm­lega tvö pró­sent hlut­hafa þáðu það þegar til­boðs­frest­ur­inn rann út á mánu­dag­inn, en þá var mark­aðsvirði Skelj­ungs í Kaup­höll­inni nokkuð hærra. Með því stækk­aði eign­ar­hlutur hóps­ins í félag­inu úr 38 pró­sentum í 41,6 pró­sent, eftir að leið­rétt var fyrir eigin hlut­u­m. 

Í gær til­kynnti svo Fjár­mála­eft­ir­litið að Strengur hafði bætt enn meira við eign­ar­hlut sinn með kaupum á 90 milljón hlut­um, þar sem 40 millj­ónir þeirra voru keyptar á 12 pró­senta afslætti og 50 millj­ónir á 2 pró­senta afslætti, miðað við gengi félags­ins í gær. 

Auglýsing

Seinna í gær­kvöldi bár­ust svo tvær til­kynn­ingar til við­bótar frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, þar sem Strengur var fyrst kom­inn með 49,59 pró­sent atkvæða­rétta í félag­inu eftir kaup á 84,7 milljón hlutum í félag­inu, og svo þar sem hlut­fall atkvæða­rétta var komið í 50,06 pró­sent eftir kaup á 9 milljón hlutum til við­bót­ar. Því hefur Strengur bætt við sig rúmum 11 pró­sentum í Skelj­ungi á einni viku.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir Gildi, Frjálsi, Festa, Birta, Lífs­verk og Stapi eru stærstu eig­endur Skelj­ungs, að Strengi und­an­skild­um, og eiga um 37 pró­sent í félag­inu. Í sam­tali við Kjarn­ann á mánu­dag­inn stað­festu sjóð­irnir að þeir höfðu hafnað yfir­tökutil­boði Strengs, en flestir þeirra sögðu ástæð­una vera þá að til­boðs­verðið hafi verið of lágt, auk þess sem þeir lögð­ust gegn yfir­lýstum áformum hóps­ins um að skrá Skelj­ung af mark­að­i. 

Allir sjóð­irnir nema Birta stað­festu svo í dag að þeir tóku ekki þátt í neinum af kaupum Strengs á hlutafé í Skelj­ungi þessa vik­una. Birta vildi ekki veita nákvæmar upp­lýs­ingar um við­skipti við Streng á síð­ustu dögum en bætti þó við að eign­ar­hlutur sjóðs­ins í félag­inu, sem nam tæp sjö pró­sentum fyr­ir, sé enn yfir fimm pró­sent­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent