Sprotar úr Startup Reykjavík hafa sótt 650 milljónir króna

einargunnar.jpg
Auglýsing

Sprota­fyr­ir­tæki sem farið hafa í gegnum Startup Reykja­vík við­skipta­hrað­al­inn, sem Arion banki og Klak Innovit standa að, hafa sótt sér 650 millj­ónir króna frá því að hann hófst árið 2012. Megnið af fénu hefur komið í gegnum fram­lög úr styrkt­ar- og rann­sókn­ar­sjóð­um, en einnig frá nýjum hlut­höfum og fjár­fest­um. Sam­tals eru sprota­fyr­ir­tækin 37 sem hafa náð sér í þetta fjár­magn. Einar Gunnar Guð­munds­son, sem hefur nýsköp­un­ar­mál hjá Arion banki á sinni könnu, segir það eitt og sér vera mik­inn og aug­ljósan ávinn­ing af við­skipta­hraðl­inum til þessa. Margt annað megi nefna sem árang­ur, eins og fjölda nýrra starfa hjá þessum fyr­ir­tækj­um.

Hann segir verk­efnið hafa verið lær­dóms­ríkt og án nokk­urs vafa hjálpað til við að örva sprota- og nýsköp­un­ar­um­hverfið á Íslandi eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, og að það sé líf­legt um þessar mund­ir. „Við erum ótrú­lega ánægð og stolt af þessu,“ segir Einar Gunn­ar. Nauð­syn­legt sé þó að styrkja aðgeng­i ­sprota­fyr­ir­tækja að fjár­magni, og bindur Einar Gunnar vonir við stofnun nýrra fjár­fest­inga­sjóða í þeim efn­um. Til fram­tíðar þurfi að leita út fyrir land­stein­anna og einnig að fá fjár­festa hér á landi til þess að sýna þessum geira meiri áhuga.

Mark­mið aðstand­enda Startup Reykja­vík sé að horfa til langrar fram­tíð­ar, eins og þurfi að gera þegar um er að ræða frum­kvöðla- og nýsköp­un­ar­starf.

Auglýsing

Kjarn­inn hefur fylgt Startup Reykja­vík verk­efn­inu eftir á þessu ári, og fjall­aði meðal ann­ars um öll fyr­ir­tækin sem fóru í gegnum hrað­al­inn, og fleiri fyr­ir­tæki sem hafa farið í gegnum það sárs­auka­fulla ferli að koma fót­unum undir starf­semi alveg frá hug­mynda­stigi. Þá voru fyr­ir­tæki heim­sótt sem hafa verið að náð miklum árangri í innra starfi þegar kemur að nýsköpun við vöru­þró­un, og má þar meðal ann­ars nefna TM Software, sem hefur marg­faldað umsvif sín eftir að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins byggðu upp Tempo hug­bún­að­inn, sem í dag er seldur til meira en sex þús­und við­skipta­vina um allan heim.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar hjá sumum fyr­ir­tækj­anna á þeim tíma sem Kjarn­inn byrj­aði að fjalla mark­visst um starf­sem­ina, og eru þau nú mörg hver að vinna að því að sækja sér fé til vaxtar og upp­bygg­ing­ar.

https://vi­meo.com/115519990

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None