Stórsigur Vina Kópavogs í takti við könnun sem framboðið lét framkvæma

Þegar félagið Vinir Kópavogs var að ákveða hvort það ætti að bjóða fram í bæjarstjórnarkosningum eða ekki lét það gera könnun, sem sýndi að rúm 17 prósent bæjarbúa gætu hugsað sér að kjósa sérframboð félagsins – sama fylgi og sést í fyrstu tölum.

Vinir Kópavogs spruttu upp úr óánægju með skipulagsmál í Kópavogi og eru með 17,2 prósent eftir fyrstu tölur úr bænum.
Vinir Kópavogs spruttu upp úr óánægju með skipulagsmál í Kópavogi og eru með 17,2 prósent eftir fyrstu tölur úr bænum.
Auglýsing

Íbúa­hóp­ur­inn Vinir Kópa­vogs virð­ast ætla að vinna mik­inn sigur í kosn­ingum til bæj­ar­stjórnar í Kópa­vogi, en sam­kvæmt fyrstu tölum úr bænum er fram­boðið með 17,2 pró­sent fylgi og ein­ungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærri.

Svör við spurningunni: Ef samtökin „Vinir Kópavogs“ myndu bjóða fram lista í sveitarstjórnarkosningunum vorið 2022, hversu líklegt eða ólíklegt er að þú myndir kjósa „Vini Kópavogs“?

Þetta eru miklar vend­ingar en ef til vill var þetta nið­ur­staðan sem búast mátti við, miðað við skoð­ana­könnun sem félagið lét gera fyrir sig á meðal bæj­ar­búa í aðdrag­anda þess að það ákvað að taka þátt í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­un­um.

Nið­ur­stöður hennar voru þær að rúm 17 pró­sent Kópa­vogs­búa teldu lík­legt að þeir myndu íhuga að kjósa sér­fram­boð undir nafni Vina Kópa­vogs í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ing­un­um.

Kjarn­inn sagði frá þeirri könnun í febr­ú­ar­mán­uði, en þá var íbúa­hóp­ur­inn ekki búinn að taka ákvörðun um að bjóða fram. Útkoman í Kópa­vogi sam­kvæmt fyrstu tölum er þannig í sam­ræmi við bestu mögu­legu nið­ur­stöð­una sem hægt hefði verið að lesa út úr könnun fram­boðs­ins.

Á fundi sem félagið hélt í Smár­anum um miðjan febr­úar kom fram til­laga um að bjóða fram undir hatti Mið­flokks­ins, en hún var felld einum rómi og var það afstaða fund­ar­manna að ef félagið færi fram yrði það óháð flokkspóli­tískum lín­um.

Hópur íbúa sem eru óánægðir með skipu­lags­mál

Félagið Vinir Kópa­vogs er sprottið upp úr óánægju hóps bæj­ar­búa með skipu­lags­mál í bæn­um, ekki síst upp­bygg­ingu þéttrar íbúa­byggðar við Hamra­borg og á Kárs­nesi.

Auglýsing

Í könn­un­inni frá því í febr­ú­ar, sem félagið lét Gallup fram­kvæma, var einnig spurt um hvernig bæj­ar­búum lit­ist á nýtt mið­bæj­ar­skipu­lag Kópa­vogs­bæj­ar.

Var nið­­ur­­staðan á þá leið að tæp 38 pró­­sent sögðu að þeim lit­ist illa á áform­in, en rúmum 34 pró­­sentum vel. 28 pró­sent sögð­ust hlut­laus.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent