Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur koma til greina að setja á enn harðari aðgerðir en þær sem hann lagði til í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra í gær. Á fundi ríkisstjórnarinnar í dag var ákveðið að hertar aðgerðir, sem fela meðal annars í sér að einungis 50 manns megi vera í sama rými í stað 500 áður, taki gildi á miðnætti og verði í gildi til og með 8. desember.
En sóttvarnalæknir telur koma til greina að setja á meiri takmarkanir en boðaðar eru, „í stuttan tíma til að ná fjölda smita eins hratt niður og mögulegt er“ og segir að með því „yrði mögulegt að aflétta fljótt í kjölfarið.“
Í minnisblaði sínu segir hann einnig að stjórnvöld þurfi að vera „tilbúin til að grípa til hertra aðgerða ef viðunandi árangur sést ekki af þeim aðgerðum“ sem boðaðar voru í dag – og að stefnt skuli að því að sjö daga meðaltal greindra smita verði um 50. Sóttvarnalæknir segir að búast megi við að „um 7-10 daga taki að sjá fyrstu merki um árangur af aðgerðum.“
Aukinn fjöldi smita byrjaður að valda alvarlegri röskun í heilbrigðiskerfinu
Sóttvarnalæknir segir í minnisblaði sínu að með þeim vaxandi fjölda smita sem greinst hefur að undanförnu hafi skapast mikið álag á heilbrigðiskerfið og „alla innviði sem vinna að því að hefta útbreiðslu COVID-19.“
„Landspítalinn er nú kominn á hættustig sem þýðir að veruleg breyting hefur orðið á starfsemi göngudeilda spítalans og veruleg röskun á ýmissi þjónustu. Í reglulegu eftirliti landlæknis með stöðu stofnana innan heilbrigðiskerfisins kemur fram að á Landspítala stigast mönnun á rauðu sem þýðir að mikill skortur er á starfsfólki og vinnuálag óásættanlegt þrátt fyrir að leitað hafi verið til bakvarðasveitar,“ segir í minnisblaðinu, en þar segir einnig að starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri hafi raskast vegna þeirra sjúklinga sem þarf hafa þurft að leggjast inn með COVID-19.
Hið sama segir Þórólfur að segja meiri um margar aðrar heilbrigðisstofnanir og lýsir hann því einnig að starfsemi rakningateymis sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar sé í „uppnámi vegna mikils fjölda smita,“ auk þess sem farsóttarhús séu að fyllast og álag á Læknavaktina og heilsugæsluna vegna COVID-tengdra verkefna sé að aukast.
„Því má fullyrða að sú aukning sem orðið hefur undanfarið á greiningum COVID-19 sé farin að valda alvarlegri röskun á starfsemi heilbrigðiskerfisins og á öllu eftirliti með covid smituðum einstaklingum. Því tel ég brýnt að gripið verði til samfélagslegra aðgerða sem fyrst til að komið verði í veg fyrir enn alvarlegra ástand í heilbrigðiskerfinu og þjóðfélaginu öllu. Einnig vil ég benda á að með útbreiddu smiti í samfélaginu þá mun skapast sú hætta að veikindi í fyrirtækum og atvinnurekstri mun valda verulegri röskun á allri þeirra starfsemi,“ segir í minnisblaði Þórólfs.