Þriðjungur kostnaðar til kominn vegna þjónustu við fatlað fólk með vímuefnavanda

Reykjavíkurborg telur úrræði sem borgin heldur úti fyrir fatlað fólk með virkan vímuefnavanda með þegar hún tekur saman útlagðan kostnað sinn við málaflokk heimilislausra. Enginn íbúi í Seltjarnarnesbæ telst heimilislaus þessa stundina.

Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sagði í nýlegu minnisblaði að málaflokkur heimilislausra sé orðinn of stór málaflokkur til að hann geti hvílt á herðum borgarinnar einnar.
Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sagði í nýlegu minnisblaði að málaflokkur heimilislausra sé orðinn of stór málaflokkur til að hann geti hvílt á herðum borgarinnar einnar.
Auglýsing

Af þeim rúm­lega 1,5 millj­örðum króna sem Reykja­vík­ur­borg sagði Kjarn­anum nýlega að varið hefði verið til mála­flokks heim­il­is­lausra í borg­inni á fyrstu tíu mán­uðum síð­asta árs fóru tæpar 460 millj­ónir króna í rekstur tveggja búsetu­úr­ræða fyrir fatlað fólk með virkan vímu­efna­vanda og 111 millj­ónir í rekstur eða stuðn­ing við alls fimm áfanga­heim­ili.

Rúmar 499 millj­ónir króna fóru í rekstur þeirra þriggja neyð­ar- eða gisti­skýla fyrir heim­il­is­laust fólk sem starf­rækt eru í borg­inni og 459 millj­ónir króna í mála­flokk heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarf­ir.

Síð­ast­nefnda upp­hæðin sund­ur­lið­ast þannig að á fyrstu tíu mán­uðum síð­asta árs fóru 125 millj­ónir króna í rekstur búsetu­úr­ræðis við Njáls­götu, 189 millj­ónir í rekstur búsetu­úr­ræðis við Hring­braut og 144 millj­ónir í starf­semi VoR-teym­is­ins, vett­vangs- og ráð­gjafateymis sem borgin heldur úti í mála­flokkn­um.

Þetta kemur fram í svari borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, þar sem fal­ast var eftir nán­ari sund­ur­liðun á þeirri upp­hæð sem upp­lýs­inga­full­trúi borg­ar­innar nefndi í fyrra svari sínu, en Kjarn­inn sagði frá því skömmu fyrir jól að á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins 2022 hefði Reykja­vík­ur­borg varið rösk­lega 1,5 millj­örðum króna í mála­flokk heim­il­is­lausra.

Auglýsing

Upp­lýs­ing­arnar eru að finna sund­ur­lið­aðar í minn­is­blaði sem tekið var saman af hálfu sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar á aðvent­unni, en mál­efni heim­il­is­lausra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa verið mjög í deigl­unni í því kulda­kasti sem staðið hefur yfir und­an­farnar vikur og var brugð­ist við með því að hafa gisti­skýli opin yfir dag­inn.

Sundurliðun á árlegum kostnaði Reykjavíkurborgar í málaflokknum undanfarin ár.

Það þykir þó ekki heppi­leg lausn til lengri tíma, sökum þess að starfs­fólk neyð­ar­skýla er orðið lang­þreytt, erfitt er að fá fólk til starfa og aðstæður í neyð­ar­skýl­unum henta illa sem vist­ar­verur allan sól­ar­hring­inn.

Í sama minn­is­blaði sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs sagði að ljóst væri að þjón­usta við heim­il­is­lausa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gæti ekki áfram „hvílt á herðum Reykja­vík­ur­borgar án aðkomu eða fjár­hags­stuðn­ings rík­is, sveit­ar­fé­laga og ann­arra hjálp­ar­stofn­ana“.

„Verk­efnið er ein­fald­lega of stórt til að áfram verði haldið á sömu braut,“ sagði í minn­is­blað­inu.

Í svari Reykja­vík­ur­borgar til Kjarn­ans kom fram að á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins hefði borgin fengið 28,5 millj­ónir króna greiddar frá öðrum sveit­ar­fé­lögum vegna íbúa þeirra sem nýtt hefðu þjón­ustu gisti­skýla.

Önnur sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í sam­tali um mála­flokk­inn

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, önnur en Reykja­vík­ur­borg, eru um þessar mundir í sam­starfi um mála­flokk heim­il­is­lausra og að vinna að úttekt um mála­flokk­inn á vett­vangi Sam­taka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurnum um útlagðan kostnað vegna mála­­flokks til þess­ara sveit­ar­fé­laga og þegar fyrri frétt mið­ils­ins fór í loftið á Þor­láks­messu höfðu svör borist frá Kópa­vogsbæ og Hafn­­ar­­firði.

Kópa­vogs­bær sagð­ist hafa greitt rúmar 16 millj­ónir króna fyrir 772 gistinætur í gisti­skýlum á vegum Reykja­vík­ur­borg­ar, auk þess sem áætl­aður kostn­aður bæj­ar­ins við rekstur áfanga­heim­ilis fyrir 8 karl­menn að Dal­brekku væri 32 millj­ónir króna.

Hafn­ar­fjarð­ar­bær sagði hins vegar „mjög erfitt að segja til um árlegan kostnað Hafn­­ar­fjarð­­ar­bæjar vegna þjón­­ustu við heim­il­is­­laust fólk“ og einnig kom fram í svari bæj­ar­ins að raun­hæf heild­ar­mynd á kostn­aði kall­aði gögn frá mörgum ólíkum aðilum sem hefðu sömu skil­grein­ing­una á heim­il­is­leysi.

Eng­inn telst heim­il­is­laus á Sel­tjarn­ar­nesi

Síðan að þessi svör bár­ust Kjarn­anum í aðdrag­anda jóla hafa Mos­fells­bær og Sel­tjarn­ar­nes­bær einnig svarað fyr­ir­spurn mið­ils­ins. Mos­fells­bær greiddi Reykja­vík­ur­borg rúmar 5,8 millj­ónir fyrir gistinætur í neyð­ar­skýlum á síð­asta ári, auk þess sem bær­inn greiddi gisti­heim­ili í Mos­fellsbæ 233 þús­und krónur fyrir gist­ingu innan sveit­ar­fé­lags­ins.

Í svari frá Sel­tjarn­ar­nesbæ kemur fram kostn­aður bæj­ar­ins vegna mála­flokks heim­il­is­lausra hefði ein­skorð­ast við það að greiða Reykja­vík­ur­borg fyrir gistinætur í neyð­ar­skýl­um.

Á Seltjarnarnesi telst enginn heimilislaus sem stendur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í svar­inu frá bænum sagði að árið 2021 hefði eng­inn ein­stak­lingur með lög­heim­ili á Sel­tjarn­ar­nesi nýtt sér þjón­ustu neyð­ar­skýl­anna, en árið 2022 hafði Sel­tjarn­ar­nes greitt fyrir þrjár næt­ur.

„Í dag telst eng­inn ein­stak­lingur með lög­heim­ili á Sel­tjarn­ar­nesi með stöðu sem heim­il­is­laus. Ávallt er reynt að koma í veg fyrir að sú staða komi upp og í því sam­bandi má nefna að nú er til skoð­un­ar, í sam­starfi við sveit­ar­fé­lögin í Krag­an­um, hvernig koma megi til móts við heim­il­is­lausa,“ segir í svari bæj­ar­ins til Kjarn­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent