Stjórnendur með stærri hlut í Landsbankanum en aðrir

Ríkið stefnir að því að selja allt að þriðjungshlut í Landsbankanum á næsta ári. Sumir starfsmenn eiga meira en aðrir í bankanum. Miðað var við lengd starfstíma og föst laun, þegar bréf voru afhent.

Landsbankinn
Auglýsing

Æðstu stjórn­endur Lands­bank­ans eiga stærri eign­ar­hlut í bank­anum en aðrir starfs­menn, eða allt að þrefalt meira en megnið af þeim ­starfs­mönnum sem eiga hlut í bank­an­um. Þetta sýna gögn um hlut­hafa Lands­bank­ans miðað við stöð­una eins og hún var, í lok árs 2014, sem Kjarn­inn hefur und­ir­ hönd­um. Þeir starfs­menn bank­ans sem eiga flesta hluti, af þeim sem komu til­ ­skipt­anna fyrir starfs­menn miðað við sam­þykkt hlut­hafa­fundar bank­ans frá 17. júlí 2013, eru Hreiðar Bjarna­son, Helgi Teitur Helga­son og Árni Þór Þor­björns­son, en þeir áttu allir 528.732 hluti í lok árs í fyrra. 

Þeir eiga allir sæti í fram­kvæmda­stjórn bank­ans. Hreiðar er yfir­maður fjár­mála, Helgi Teit­ur ein­stak­lings­við­skipta og Árni Þór Þor­björns­son fyr­ir­tækja­við­skipta.

Stein­þór Páls­son, banka­stjóri, er ekki á meðal tíu stærst­u hlut­hafa bank­ans en hann á 345.228 hluti í bank­an­um, eða um 65 pró­sent af eign Hreið­ars, Helga Teits og Árna Þórs.

Auglýsing

Ríkið á 98 pró­sent hlut í bank­anum hlutur starfs­manna er um eitt pró­sent. Flestir af þeim 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönn­um ­bank­ans, sem fengu hluta­bréf í bank­an­um, eiga á bil­inu 50 þús­und til 200 þús­und hluti.

Steinþór Pálsson.

Starfs­menn eign­uð­ust hlut

Á hlut­hafa­fund­inum 17. Júlí 2013, voru stað­festar úthlut­un­ar­reglur um afhend­ingu hluta­bréfa til starfs­manna, en með­ af­hend­ingu hluta­bréf­anna var Lands­bank­inn að upp­fylla þær skyldur sem samn­ing­ur um fjár­hags­legt upp­gjör við LBI hf., það er kröfu­hafa gamla Lands­bank­ans, og ­ís­lenska rík­ið, sagði til um.

Hluta­bréfin sem starfs­menn feng­u voru áður í eigu kröfu­hafa gamla Lands­bank­ans (LBI) og nema um einu pró­senti af heild­ar­hluta­fé. Ríkið er lang­sam­lega stærsti eig­andi bank­ans, með um 98 pró­sent hluta­fjár.

Starfs­menn sem fengu hluta­bréf í bank­an­um, gerðu það með skil­yrð­um, um að óheim­ilt væri að selja bréfin fyrr en eftir þrjú ár frá afhend­ingu, en hluta þeirra má selja fyrr, komi til þess að ­bank­inn verði skráður á mark­að. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, hef­ur ­sagt að það komi til álita, að selja hlut í bank­anum og um leið skrá hann á mark­að. Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir næsta ár hefur ráð­herra heim­ild til­ þess að selja tæp­lega þriðj­ungs­hlut í bank­an­um, og standa vonir til þess að allt að 71 millj­arður fáist fyrir þann hlut.



Samn­ingur um árang­ursteng­ingu

Afhend­ing hluta­bréf­anna bygg­ist á samn­ingi frá 15. des­em­ber 2009 en þá gerðu Lands­bank­inn og LBI hf. , það er ­kröfu­hafar eða slitabú gamla Lands­bank­ans, og Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá­ver­andi fjár­mála­ráð­herra fyrir hönd íslenska rík­is­ins, samn­ing um fjár­hags­upp­gjör milli Lands­bank­ans hf. og slita­búss­ins. Með sam­þykki rík­is­ins var Lands­bank­anum gert að koma á árang­urstengdu launa­kerfi fyrir starfs­menn Lands­bank­ans hf. og setti íslenska ríkið skil­yrði um að það næði til allra ­starfs­manna. Kerfið skyldi taka mið af verð­mæti til­tek­inna eigna­safna stærri ­fyr­ir­tækja sem lágu til grund­vallar ákvörð­unar á fjár­hæð skil­yrts skulda­bréfs ­sem er hluti af fjár­hags­upp­gjör­inu. Nið­ur­staða verð­mats óháðs ytri aðila var að ­gefa skyldi út skil­yrta skulda­bréfið miðað við hámarks­fjár­hæð þess.  

Sam­kvæmt þessu sam­komu­lagi skyldi slita­bú­ið ráð­stafa af eign bús­ins, og þar með eign kröfu­hafa, 500.000.000 hlut­um, um tvö pró­sent af heild­ar­hluta­fé, í Lands­bank­anum sam­kvæmt úthlut­un­ar­reglum sem bank­inn skyld­i koma á í síð­asta lagi fyrir árs­lok 2012. Þeim reglum var hins vegar ekki kom­ið á fyrir þann tíma. Á hlut­hafa­fundi 27. mars 2013 var sam­þykkt að bank­anum væri heim­ilt að taka við hluta­bréf­unum frá slita­bú­inu en henni fylgdi kvöð um að af­henda bæri þau starfs­mönn­um. 

Við afhend­ingu hluta­bréf­anna var starfs­kjara­stefnu Lands­bank­ans fylgt, af því er sagði í til­kynn­ingu bank­ans, og mið tekið af regl­u­m Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) um kaupauka­kerfi fjár­mála­fyr­ir­tækja, en afhend­ing hluta­bréfanna, eins og er í þessu til­felli, fellur ekki undir þær, strangt til tek­ið. Starfs­menn ­eft­ir­litsein­inga fá ekki afhent hluta­bréf en bank­anum er hins­vegar gert ­sam­kvæmt reglum FME að tryggja þeim jafn­ræði í kjörum með öðrum hætti.

Afhend­ing hluta­bréfa til starfs­manna

Hluta­bréfin voru afhent ­starfs­mönnum Lands­bank­ans og Lands­bréfa, dótt­ur­fé­lagi bank­ans, sem voru fast­ráðnir þann 31. mars 2013  og þeim sem látið hafa af störfum vegna ald­urs, örorku eða verið sagt upp í hag­ræð­ing­ar­skyni.  Fjöldi afhentra hluta til hvers og eins starfs­manns er hlut­falls­legur og mið­ast við föst laun og þann tíma sem við­kom­andi hefur starfað hjá Lands­bank­anum frá 15. des­em­ber 2009 til 31. mar­s 2013.

Mik­il verð­mæti

Þó heild­ar­hluti ein­stakra starfs­manna í Lans­bank­an­um sé lít­ill hluti af 25 millj­arða heild­ar­fjölda hluta í Lands­bank­an­um, þá er um ­tölu­verð verð­mæti að ræða. Ekki síst þar sem miklar breyt­ingar hafa orðið á eig­in­fjár­stöðu Lands­bank­ans til góðs frá því hann var end­ur­reist­ur. Sam­kvæmt ­síð­asta birta upp­gjöri var eigið fé bank­ans um 250 millj­arðar króna og ­mark­aðs­hlut­deild á Íslandi mikil og stöðug. Meira en 113 þús­und ein­stak­ling­ar eru í við­skiptum við bank­anna, og ríf­lega ell­efu þús­und fyr­ir­tæki.

Sé mið tekið af gangi mála á hluta­bréfa­mark­aði hér á landi, þar sem mikil eft­ir­spurn hefur verið á und­an­förnum árum, þá er ekki úti­lokað að mark­aðsvirði Lands­bank­ans auk­ist við skrán­ingu, þó vandi sé um slíkt að spá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None