Vandi vímuefnanotenda verði meðhöndlaður í heilbrigðiskerfinu fremur en dómskerfinu

Rauði krossinn styður þær breytingar sem lagðar eru fram í frumvarpi til laga um afglæpavæðingu neysluskammta og segir lagasetninguna styðja við uppsetningu og þróun skaðaminnkandi þjónustu. Þetta er í fjórða sinn sem slíkt frumvarp er lagt fram.

Frú Ragnheiður er á meðal skaðaminnkandi verkefna sem Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir. Rauði krossinn fagnar því að aftur sé verið að leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu á kaupum og vörslu neysluskammta.
Frú Ragnheiður er á meðal skaðaminnkandi verkefna sem Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir. Rauði krossinn fagnar því að aftur sé verið að leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu á kaupum og vörslu neysluskammta.
Auglýsing

Afglæpa­væð­ing neyslu­skammta er skref í „átt að gagn­reyndri og mann­úð­legri nálgun gagn­vart vímu­efna­notkun og vímu­efna­vanda með skaða­minnk­andi hug­mynda­fræði að leið­ar­ljósi.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Rauða kross­ins um frum­varp um breyt­ingu á lögum um ávana- og fíkni­efni, það er, um afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta. Þá styður Rauði kross­inn þá stefnu að með­höndla eigi vanda vímu­efna­not­enda í íslensku sam­fé­lagi í heil­brigð­is­kerf­inu fremur en dóms­kerf­inu.

Þetta er í fjórða sinn sem Hall­­dóra Mog­en­­sen, þing­­maður Pírata, fer fyrir frum­varpi um afglæpa­væð­ingu neyslu­­skammta. Svan­­dís Svav­­­ar­s­dóttir lagði fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­­skammta í apríl 2021 og byggði það að hluta til á vinnu við og umsögnum um frum­varp Hall­­dóru og með­­­flutn­ings­­fólks henn­­ar.

Auglýsing

Frum­varpið varð ekki að lögum en til stóð að end­­ur­flytja það með breyt­ingum af Willum Þór Þór­s­­syni, sem tók við sem heil­brigð­is­ráð­herra eftir kosn­­ing­­arnar í lok síð­asta árs. Frum­varpið var hins vegar fellt niður af þing­­mála­­skrá þings sem þá stóð yfir í mars. Í svari ráðu­­neyt­is­ins til Kjarn­ans vegna ákvörð­un­­ar­innar sagði að ráð­herra hefði ákveðið að vinna að frek­­ari útfærslu á frum­varp­inu, meðal ann­­ars með því að skil­­greina hug­takið neyslu­­skammt­­ur. Starfs­hópur var skip­aður í febr­­úar um verk­efnið og hefur hann ekki skilað til­lög­um.

Hall­dóra Mog­en­sen, þing­maður Pírata, er flutn­ings­maður frum­varps­ins ásamt öðrum þing­mönnum Pírata. Guð­brandur Ein­ars­son, Hanna Katrín Frið­riks­son og Sig­mar Guð­munds­son, þing­menn Við­reisn­ar, eru einnig flutn­ings­menn frum­varps­ins auk Loga Ein­ars­sonar og Helgu Völu Helga­dótt­ur, þing­manna Sam­fylk­ing­ar.

Umræða um hug­­mynda­fræði skaða­m­inn­kunnar og afglæpa­væð­ingu neyslu­­skammta hefur auk­ist síð­­­ustu ár, umræða þar sem fjallað er um að ekki eigi að refsa fólki fyrir vörslu tak­­mark­aðs magns fíkn­i­efna til eigin nota og að efnin eigi ekki að gera upp­­tæk hjá full­orðnu fólki.

Rauði kross­inn hefur boðið upp á skaða­minn­k­un­ar­úr­ræði hér landi frá 2009 þegar Frú Ragn­heið­­ur, öruggt neyslu­­rými í bíl sem ekur um höf­uð­­borg­­ar­­svæð­ið, tók til starfa. Í mars á þessu ári tók Ylja, fyrsta fær­an­­lega neyslu­­rýmið til starfa, og sagði verk­efna­­stjóri hjá Rauða kross­inum í sam­tali við Kjarn­ann að opnun rým­is­ins end­­ur­­spegli við­horfs­breyt­ingu á skaða­minn­k­un.

Veigra sér við að leita bráða­að­toðar af ótta við að lög­regla geri neyslu­skammta upp­tæka

Rauði kross­inn fagnar því að aftur sé verið að leggja fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta og styður þær breyt­ingar í lög­gjöf­inni sem þar eru lagðar fram.

Í umsögn Rauða kross­ins segir að verði frum­varpið að lögum mun aðgengi jað­ar­settra ein­stak­linga, sér­stak­lega þeirra sem glíma við erf­iðan vímu­efna­vanda, að heil­brigð­is-, félags­legs- og við­bragðs­þjón­ustu aukast til muna.

Rauði kross­inn telur mik­il­vægt að not­endur vímu­efna hafi greiðan aðgang að heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­þjón­ustu, án for­dóma og jað­ar­setn­ing­ar. „Dæmi eru um að ein­stak­lingar sem glíma við vímu­efna­vanda veigri sér við að hringja eftir bráða­að­stoð eða leita sér aðstoðar af ótta við að lög­regla geri neyslu­skammta þeirra upp­tæka og/eða vera hand­tekin vegna ann­ars ólög­mæts athæf­is. Getur það jafn­vel átt við í bráða­til­fellum eins og við ofskömmtun á vímu­efn­um, sem og í til­vikum heim­il­is­of­beldis eða ann­ars­konar ofbeld­is,“ segir í umsögn Rauða kross­ins.

Rauði kross­inn telur að bæði not­endur vímu­efna og starfs­fólk heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­þjón­ust­unnar þurfi að geta rætt opin­skátt um málin án þess að eiga á hættu að nauð­syn­leg vel­ferðar geti jafn­framt talist refsi­vert athæfi, það er að segja mál tengd neyslu vímu­efna og vit­neskja um neyslu­skammta.

„Það að tryggja að ekki verði hægt að fjar­lægja neyslu­skammta af fólki er mik­il­vægt örygg­is­mál fyrir jað­ar­setta ein­stak­linga og auð­veldar einnig starfs­fólki á vett­vangi að þjón­usta og styðja við ein­stak­linga sem glíma við vímu­efna­vanda út frá þeirra þörf­um,“ segir í umsögn Rauða kross­ins.

Eykur skaða að taka neyslu­skammta af fólki sem glímir við vímu­efna­vanda

Rauði kross­inn á Íslandi hefur fengið „ómet­an­lega og ein­staka inn­sýn í stöðu og veru­leika ein­stak­linga sem glíma við erf­iðan vímu­efna­vanda í gegnum skaða­minnk­un­ar­verk­efni félags­ins,“ að því er fram kemur í umsögn­inni. Rauði kross­inn bendir á að skjól­stæð­ingar þess­ara verk­efna eru alla­jafna veru­lega jað­ar­settir vegna vímu­efna­vand­ans og fjöl­margir þeirra glíma við heim­il­is­leysi.

„Reynsla Rauða kross­ins er sú að þegar lög­regla gerir neyslu­skammta upp­tæka eykst örvænt­ing jað­ar­setts ein­stak­lings með vímu­efna­vanda. Þannig má leiða líkur að því að ef neyslu­skammtur ein­stak­lings er gerður upp­tækur ýti það ein­stak­lingnum enn frekar í átt að ólög­legu athæfi til fjár­mögn­unar á efn­um. Staða þess ein­stak­lings verður þannig sífellt verri og vandi hans eykst. Að taka neyslu­skammta af fólki sem glímir við erf­iðan og virkan vímu­efna­vanda getur aukið skaða fyrir ein­stak­ling­inn og sam­fé­lagið sömu­leið­is,“ segir í umsögn­inni.

Á síð­asta ári hafði lög­regla afskipti af 781 ein­stak­lingi vegna neyslu­skammta. Það eru tölu­vert færri en árin á und­an. Síð­ustu ell­efu ár, frá 2010-2021, hefur lög­regla haft afskipti af 7.513 ein­stak­lingum vegna vörslu neyslu­skammta. Flest voru til­fellin árið 2014, 1.246 tals­ins.

Í frum­varp­inu sem nú liggur fyrir Alþingi er lagt til að ráð­herra setji reglu­gerð þar sem kveðið er á um hvaða magn fíkni­efna geti talist til eigin nota og lagt er til að miðað verði við 10 daga neyslu­skammt. Rauði kross­inn bendir á að við­miðið gæti verið óheppi­legt þar sem um háan skammt er að ræða og lagt er til að daga­fjöldi neyslu­skammta verði minnk­að­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent