Vilja styrkja húsnæðismarkaðinn - Áfram unnið að lausnum

15996599272_a09261720e_z.jpg
Auglýsing

Rík­is­stjórnin skuld­bindur sig einnig, í sam­vinnu vð Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga og aðila vinnu­mark­að­ar­ins, til að skapa bætt skil­yrði fyrir upp­bygg­ingu á hús­næð­is­mark­aði. Þetta er eitt af því sem nefnt er sér­stak­lega í frétta­til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni vegna aðgerða sem miða að því að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga á vinnu­mark­aði.

Meðal þess sem áformað er að gera, er að byggja 2.300 félags­legar íbúðir á tíma­bil­inu 2016 til 2019. Með því er stuðlað að því að fjölga ódýrum og litlum íbúð­um, einkum fyrir þá sem lágar tekjur hafa og telj­ast til efna­minni leigj­enda.  Þá verður „skatt­lagn­ingu breytt í þeim til­gangi að lækka leigu­verð og auka fram­boð á leigu­mark­aði“ segir í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni. Þá er einnig frá því greint að komið verði sér­stak­lega til móts við þá sem kaupa sína fyrstu íbúð, en vísað er sér­stak­lega til þess að fólk geti nýtt sér­eigna­sparnað sinn í þeim til­gangi að liðka fyrir við­skipt­um. Það úrræði er nú þegar fyrir hendi, og var hluti af leið­rétt­ing­unni svo­nefndu þar sem heim­ilt var að ráð­stafa sér­eigna­sparn­aði sínum inn á fast­eigna­lán sín.

Félags­lega leigu­kerfið verður fjár­magnað með stofn­fram­lögum ríkis og sveit­ar­fé­laga og með beinum vaxta­nið­ur­greiðslum rík­is­ins sem nema núvirt 30 pró­sent af stofn­kostn­aði, að því er segir í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „Slíkt fram­lag ríkis og sveit­ar­félga ætti að jafn­aði að leiða til þess að leiga ein­stak­lings með lágar tekjur nemi ekki hærra hlut­falli en 20 til 25 pró­sent af tekj­u­m,“ segir í til­kynn­ing­unni. Ekki liggur fyrir í nákvæm­is­at­riðum hvernig þetta verður útfært, enda þurfa sveit­ar­fé­lög að sam­þykkja upp­leggið fyrir sitt leyti, til þess að það geti orðið að veru­leika.

Auglýsing

Þá kemur fram að unnið verði að fram­an­greindum mark­miðum í sam­ráði rík­is, sveit­ar­fé­laga og heild­ar­sam­taka aðila á vinnu­mark­aði með „hlið­sjón af fyr­ir­liggj­andi vinnu stjórn­valda við umbætur á hús­næð­is­mark­aði og hug­myndum sem komið hafa upp í sam­ráðs­hópn­um“ eins og orð­rétt segir í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Bank­arn­ir, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn, hafa að mestu veit­ingu hús­næð­is­lána á sinni könnu, en sam­eig­in­lega mark­aðs­hlut­deild þeirra hefur verið um eða yfir 90 pró­sent und­an­farin miss­eri. Hámarks­lán til kaupa á hús­næði er 85 pró­sent af kaup­verði hjá bönk­un­um, en hjá Íbúða­lána­sjóði, sem hefur litla sem enga mark­aðs­hlut­deild á lána­mark­aði þessi miss­er­in, er lánað að hámarki 80 pró­sent af kaup­verði.

Spár gera ráð fyrir tölu­verðri hækkun á fast­eigna­verði á næstu þremur árum, eða um 20 til 25 pró­sent að nafn­virði, sam­kvæmt spám.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None