Vill að Hanna Birna verði yfirheyrð á opnum nefndarfundi

hannabirna.jpg
Auglýsing

Píratar hafa kraf­ist þess að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra, Stefán Eiríks­son frá­far­andi lög­reglu­stjóri og Sig­ríður Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari verði kölluð fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis vegna meintra af­skipta ráð­herra af lög­reglu­rann­sókn á leka­mál­inu svo­kall­aða. Ekki liggur fyrir hvort Pírötum verður að ósk sinni, en það mun ráð­ast eftir næsta fund stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, sem enn hefur ekki verið dag­sett­ur.

Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata og annar vara­for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, stað­festir í sam­tali við Kjarn­ann að hún mun­i krefj­ast þess á næsta fundi nefnd­ar­innar að fund­ir­ ­með þre­menn­ingum verði opnir almenn­ingi og fjöl­miðl­um, ef af þeim verð­ur.

Auglýsing


Fasta­nefndum Alþingis er í sjálfs­vald sett hvort nefnd­ar­fundir eru opnir almenn­ingi og þá fjöl­miðlum sömu­leið­is. Síðan árið 2008 hafa verið haldnir fjöl­margir opnir nefnd­ar­fund­ir, eða frá því að störfum Alþingis var breytt það ár.



Ögmundur Jón­as­son, þing­maður Vinstri grænna og for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, segir það mjög vel koma til greina að fundir nefnd­ar­innar með þre­menn­ing­unum verði opnir almenn­ingi. En aðrir aðilar séu með málið til umfjöll­un­ar, emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara og emb­ætti umboðs­manns Alþingis auk lög­regl­unnar og hljóti máls­með­ferð í stjórn­skip­un­ar- og efitr­lits­nen­fnd Alþingis að taka mið af fram­vind­unni hjá þeim. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um leka­mál­ið.



Meiri­hluti við­kom­andi þing­nefndar þarf að sam­þykkja að þing­fundir séu opnir almenn­ingi. Í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis eru níu nefnd­ar­menn. Auk Ögmundar og Birgittu eiga sæti í nefnd­inni; Brynjar Níels­son, sem jafn­framt er vara­for­maður nefnd­ar­inn­ar, og Pétur H. Blön­dal þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, Karl Garð­ars­son, Sig­rún Magn­ús­dóttir og Willum Þór Þórs­son frá Fram­sókn­ar­flokki, og Helgi Hjörvar og Val­gerður Bjarna­dóttir þing­menn Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None