Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ræddi orkuskipti á Alþingi í dag og spurði hvort það væri til of mikils mælst að stjórnvöld byrji á réttum enda í þeim efnum.
Rétti endinn er, að hennar mati, að móta lagaumgjörð, forgangsröðun og leikreglur orkuskiptanna áður en „virkjanakúrekunum er gefinn laus taumurinn“, líkt og hún orðaði það undir liðnum störf þingsins.
Þórunn vísaði í grein Bjarna Bjarnasonar, fráfarandi forstjóra Orkuveitunnar, sem birtist á Vísi í morgun undir yfirskriftinni „Að virkja sig frá loftslagsvánni“. Bjarni var einnig gestur í Silfrinu á RÚV í gær þar sem hann ræddi um orkuskiptin, orkuþörf og hugmyndir um uppbyggingu vindorkuvera, eða vindmyllugarða hér á landi.
Ýmis fyrirtæki hafa sóst eftir því að fá að beisla vindinn, alla liggja fyrir hugmyndur um slíka uppbyggingu á 34 stöðum víða um landið.
Ógerlegt að tryggja að nýtt rafmagn rati í orkuskiptin
Í grein sinni á Vísi segir Bjarni að samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum er ógerlegt að tryggja að nýtt rafmagn rati í orkuskiptin. „Engu að síður er unnendum náttúru Íslands nánast stillt upp við vegg; annaðhvort virkjum við þessi reiðinnar býsn af rafmagni eða aukum á loftslagsvána. Það er ekki gott,“ skrifar Bjarni í grein sinni.
Þórunn vísaði í þessi orð Bjarna og sagði þetta kjarna málsins. „Allt tal um að hægt sé að rigga upp 16 teravattstundum í orkuöflun, sem að sögn er nauðsynlegt vegna orkuskiptanna, er eins og hver önnur fásinna. Það þarf nefnilega að gera margt annað en að virkja vatnsföll, jarðvarma og vind til að draga hratt og örugglega úr losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi.“
Frumvarpa frá umhverfisráðherra enn beðið
Þórunn, ásamt öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar, mælti fyrir þingsályktunartillögu í upphafi þessa þings um breytingar á raforkulögum til að tryggja raforkuöryggi almennings og forgangsröðun raforkuframleiðslu til orkuskipta. Tillagan var fyrst lögð fram á síðasta þingi.
„Þar leggjum við meðal annars til að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á lögum og reglugerðum svo hægt sé að beina orkuöflun til orkuskiptanna,“ sagði Þórunn. Í tillögunni kemur fram að ekkert í núverandi lagaumhverfi raforkunýtingar gerir stjórnvöldum kleift að stýra raforkuframleiðslu hér á landi þannig að hún nýtist beint til orkuskipta. „Þannig hafa stjórnvöld ekki í höndunum nauðsynleg tæki til að framfylgja áætlunum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og uppfylla markmið Íslands í loftslagsmálum. Það er því langt frá því að vera öruggt að orka úr nýjum virkjanakostum renni til orkuskipta,“ segir meðal annars í þingsálykutnartillögunni.
Í tillögunni er einnig lagt til að stjórnvöld skilgreini svokallaða alþjónustu með fullnægjandi hætti í raforkulögum til að tryggja raforkuöryggi heimilanna í landinu, sem er ekki síður mikilvægt að mati Þórunnar.
„Þetta hefur ekki verið gert og enn er beðið frumvarpa frá hæstvirtum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra,“ sagði Þórunn.