Vill að stjórnvöld byrji á réttum enda áður en „virkjanakúrekum er gefinn laus taumurinn“

Þingmaður Samfylkingarinnar vill að stjórnvöld byrji á réttum enda í orkuskiptum. „Allt tal um að hægt sé að rigga upp 16 terawattstundum í orkuöflun, sem að sögn er nauðsynlegt vegna orkuskiptanna, er eins og hver önnur fásinna.“

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, ræddi orku­skipti á Alþingi í dag og spurði hvort það væri til of mik­ils mælst að stjórn­völd byrji á réttum enda í þeim efn­um.

Rétti end­inn er, að hennar mati, að móta lagaum­gjörð, for­gangs­röðun og leik­reglur orku­skipt­anna áður en „virkj­anakúrek­unum er gef­inn laus taum­ur­inn“, líkt og hún orð­aði það undir liðnum störf þings­ins.

Þór­unn vís­aði í grein Bjarna Bjarna­son­ar, frá­far­andi for­stjóra Orku­veit­unn­ar, sem birt­ist á Vísi í morgun undir yfir­skrift­inni „Að virkja sig frá lofts­lags­vánn­i“. Bjarni var einnig gestur í Silfr­inu á RÚV í gær þar sem hann ræddi um orku­­skipt­in, orku­þörf og hug­­myndir um upp­­­bygg­ingu vind­orku­vera, eða vind­­myllu­­garða hér á landi.

Ýmis fyr­ir­tæki hafa sóst eftir því að fá að beisla vind­inn, alla liggja fyrir hug­­myndur um slíka upp­­­bygg­ingu á 34 stöðum víða um land­ið.

Auglýsing
Bjarni telur áform um vind­virkj­anir hér á landi ekki raun­hæf­ar. „Þarna væri orku­­geir­inn að valta yfir ferða­­þjón­­ustu. Ferða­­þjón­ustan er í dag sá atvinn­u­­vegur sem skilar mestum gjald­eyri í þjóð­­ar­­bú­ið, gerði það fyrir Covid og það stefnir í það aftur núna, þannig að atvinn­u­­vegir þurfa að sjálf­­sögðu að búa saman í sátt og sam­­lyndi, það er ekki annað hægt. Einn atvinn­u­­vegur getur ekki valtað yfir ann­an,” sagði Bjarni í Silfr­inu í gær.

Óger­legt að tryggja að nýtt raf­magn rati í orku­skiptin

Í grein sinni á Vísi segir Bjarni að sam­kvæmt gild­andi lögum og reglu­gerðum er óger­legt að tryggja að nýtt raf­magn rati í orku­skipt­in. „Engu að síður er unn­endum nátt­úru Íslands nán­ast stillt upp við vegg; ann­að­hvort virkjum við þessi reið­innar býsn af raf­magni eða aukum á lofts­lags­vána. Það er ekki gott,“ skrifar Bjarni í grein sinni.

Þór­unn vís­aði í þessi orð Bjarna og sagði þetta kjarna máls­ins. „Allt tal um að hægt sé að rigga upp 16 tera­vatt­stundum í orku­öfl­un, sem að sögn er nauð­syn­legt vegna orku­skipt­anna, er eins og hver önnur fásinna. Það þarf nefni­lega að gera margt annað en að virkja vatns­föll, jarð­varma og vind til að draga hratt og örugg­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á land­i.“

Frum­varpa frá umhverf­is­ráð­herra enn beðið

Þór­unn, ásamt öðrum þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, mælti fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í upp­hafi þessa þings um breyt­ingar á raf­orku­lögum til að tryggja raf­orku­ör­yggi almenn­ings og for­gangs­röðun raf­orku­fram­leiðslu til orku­skipta. Til­lagan var fyrst lögð fram á síð­asta þingi.

„Þar leggjum við meðal ann­ars til að gerðar verði nauð­syn­legar breyt­ingar á lögum og reglu­gerðum svo hægt sé að beina orku­öflun til orku­skipt­anna,“ sagði Þór­unn. Í til­lög­unni kemur fram að ekk­ert í núver­andi lagaum­hverfi raf­orku­nýt­ingar gerir stjórn­völdum kleift að stýra raf­orku­fram­leiðslu hér á landi þannig að hún nýt­ist beint til orku­skipta. „Þannig hafa stjórn­völd ekki í hönd­unum nauð­syn­leg tæki til að fram­fylgja áætl­unum um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og upp­fylla mark­mið Íslands í lofts­lags­mál­um. Það er því langt frá því að vera öruggt að orka úr nýjum virkj­ana­kostum renni til orku­skipta,“ segir meðal ann­ars í þings­á­lykutn­ar­til­lög­unni.

Í til­lög­unni er einnig lagt til að stjórn­völd skil­greini svo­kall­aða alþjón­ustu með full­nægj­andi hætti í raf­orku­lögum til að tryggja raf­orku­ör­yggi heim­il­anna í land­inu, sem er ekki síður mik­il­vægt að mati Þór­unn­ar.

„Þetta hefur ekki verið gert og enn er beðið frum­varpa frá hæst­virtum umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra,“ sagði Þór­unn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent