Rekstrartekjur Vinstri grænna voru 148,5 milljónir króna á árinu 2020, sem var tæplega 5,3 milljónum krónum minna en flokkurinn hafði í tekjur árið áður. Líkt og hjá öðrum stjórnmálaflokkum kom þorri tekna úr opinberum sjóðum. Alls komu 134 milljónir króna úr ríkissjóði og frá Alþingi og 1,9 milljónir króna frá sveitarfélögum þar sem flokkurinn á kjörinn fulltrúa. Því komu um 92 prósent tekna Vinstri grænna úr opinberum sjóðum.
Flokkurinn þáði ekki eina krónu frá lögaðilum í fyrra en voru 8,5 milljónir króna og innheimt félagsgjöld 3,3 milljónir króna.
Hagnaður Vinstri grænna var 60 milljónir króna á árinu 2020 og jókst um 55 prósent milli ára.
Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Vinstri grænna sem skilað var inn til Ríkisendurskoðunar nýverið og birtur á vef stofnunarinnar í gær. Flokkurinn fékk alls 11 þingmenn kjörna í kosningunum 2017 og 16,9 prósent atkvæða. Það gerði hann að næst stærsta flokknum á þing.
Vinstri græn töpuðu hins vegar tveimur þingmönnum til annarra flokka á kjörtímabilinu og fengu svo 12,6 prósent atkvæða í kosningunum í september síðastliðnum, sem skilaði Vinstri grænum átta þingmönnum.
Búast má við því að framlög til flokksins úr ríkissjóði verði fyrir vikið umtalsvert lægri á þessu kjörtímabili en á því síðasta enda segir atkvæðamagnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkissjóði.
Aukin auglýsingakostnaður
Rekstrargjöld voru 89,4 milljónir króna og drógust saman um 24 prósent milli ára. Nær allir kostnaðarliðir annað hvort lækkuðu eða breyttust lítillega. Laun og launatengdur kostnaður lækkuðu til að mynda um 12 milljónir króna. Undantekningin frá því var kostnaður vegna auglýsinga sem hækkaði um 40 prósent og var 22,1 milljón króna.
Vert er þó að taka fram að á árinu 2019 var haldinn landsfundur Vinstri grænna og gefin út vegleg bók um sögu hreyfingarinnar í tilefni af 20 ára afmæli hennar. Samanlagður kostnaður við það á því ári var rúmlega 20 milljónir króna.
Vinstri græn eru skuldléttur stjórnmálaflokkur, heildarskuldir hans voru 3,7 milljónir króna í lok síðasta árs, og skuldirnar lækkuðu úr 9,3 milljónum krónum á síðasta ári.
Eina fasteignin sem flokkurinn á er húsnæði við Brekkugötu á Akureyri sem bókfært er á fimm milljónir króna. Fasteignamat þess er hins vegar 14,7 milljónir króna.
Helmingur framlaga frá einstaklingum á síðustu ári komu frá þingmönnum og starfsmönnum Vinstri grænna.
Framlög til flokka úr ríkissjóði hækkuð gríðarlega
Framlög til stjórnmálaflokka úr ríkissjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjörtímabils. Tillaga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka framlag ríkisins til stjórnmálaflokka á árinu 2018 um 127 prósent var samþykkt í fjárlögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok desember 2017. Framlög til stjórnmálaflokka á því ári áttu að vera 286 milljónir króna en urðu 648 milljónir króna.
Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórnmálaflokkar sem fengu nægjanlegt fylgi í síðustu þingkosningum til að fá úthlutað fjármunum úr ríkissjóði fá samtals 728,2 milljónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.
Um er að ræða þá átta flokka sem eiga fulltrúa á þingi auk Sósíalistaflokks Íslands sem hlaut nægjanlegt fylgi í síðustu kosningum til að hljóta framlag.
Það er sama upphæð og flokkarnir fengu samtals í fyrra og sama upphæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætlanir stjórnvalda ráð fyrir því að hún haldist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórnmálaflokkar landsins alls hafa fengið 3.641 milljónir króna úr ríkissjóði á fimm ára tímabili.
Til viðbótar við þær greiðslur er kostnaður vegna starfsmanna þingflokka greiddur af Alþingi.
Ársreikningar nú birtir í heild
Fulltrúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex formenn stjórnmálaflokka, lögðu svo sameiginlega fram frumvarp til að breyta lögum um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þinglok þess árs.
Á meðal breytinga sem það stuðlaði að var að leyfa stjórnmálaflokkum að taka á móti hærri framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Hámarksframlag var 400 þúsund krónur en var breytt í 550 þúsund krónur.
Auk þess var sú fjárhæð sem einstaklingur þarf að gefa til að vera nafngreindur í ársreikningum viðkomandi flokka eða frambjóðenda sé hækkuð úr 200 þúsund krónum í 300 þúsund krónur.
Þá var ákveðið að láta stjórnmálaflokkanna skila ársreikningum sínum til ríkisendurskoðanda fyrir 1. nóvember ár hvert í stað 1. október líkt og áður var. Sú grundvallarbreyting fylgdi með að Ríkisendurskoðun hætti að birta takmarkaðar upplýsingar úr reikningum flokkanna, svokallaðan útdrátt, og átti þess í stað að birta ársreikninganna í heild sinni áritaða af endurskoðendum.
Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokkarnir þó ekki að sæta því að ársreikningar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri framkvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.
Sem stendur hefur Ríkisendurskoðun ekki birt ársreikninga eins flokks, Pírata, vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.