Vinstri græn högnuðust um 60 milljónir króna á síðasta ári

Flokkur forsætisráðherra fékk 92 prósent tekna sinna úr opinberum sjóðum á árinu 2020. Hann þáði engin framlög frá lögaðilum. Hagnaður Vinstri grænna jókst samt sem áður um 55 prósent milli ára.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Auglýsing

Rekstr­ar­tekjur Vinstri grænna voru 148,5 millj­ónir króna á árinu 2020, sem var tæp­lega 5,3 millj­ónum krónum minna en flokk­ur­inn hafði í tekjur árið áður. Líkt og hjá öðrum stjórn­mála­flokkum kom þorri tekna úr opin­berum sjóð­u­m.  Alls komu 134 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og frá Alþingi og 1,9 millj­ónir króna frá sveit­ar­fé­lögum þar sem flokk­ur­inn á kjör­inn full­trúa. Því komu um 92 pró­sent tekna Vinstri grænna úr opin­berum sjóð­um.

Flokk­ur­inn þáði ekki eina krónu frá lög­að­ilum í fyrra en voru 8,5 millj­ónir króna og inn­heimt félags­gjöld 3,3 millj­ónir króna.

Hagn­aður Vinstri grænna var 60 millj­ónir króna á árinu 2020 og jókst um 55 pró­sent milli ára.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­­reikn­ingi Vinstri grænna sem skilað var inn til Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar nýverið og birtur á vef stofn­un­ar­innar í gær. Flokk­ur­inn fékk alls 11 þing­menn kjörna í kosn­ing­unum 2017 og 16,9 pró­sent atkvæða. Það gerði hann að næst stærsta flokknum á þing.

Vinstri græn töp­uðu hins vegar tveimur þing­mönnum til ann­arra flokka á kjör­tíma­bil­inu og fengu svo 12,6 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í sept­em­ber síð­ast­liðn­um, sem skil­aði Vinstri grænum átta þing­mönn­um. 

Búast má við því að fram­lög til flokks­ins úr rík­is­sjóði verði fyrir vikið umtals­vert lægri á þessu kjör­tíma­bili en á því síð­asta enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóð­i. 

Aukin aug­lýs­inga­kostn­aður

Rekstr­ar­gjöld voru 89,4 millj­ónir króna og dróg­ust saman um 24 pró­sent milli ára. Nær allir kostn­að­ar­liðir annað hvort lækk­uðu eða breytt­ust lít­il­lega. Laun og launa­tengdur kostn­aður lækk­uðu til að mynda um 12 millj­ónir króna. Und­an­tekn­ingin frá því var kostn­aður vegna aug­lýs­inga sem hækk­aði um 40 pró­sent og var 22,1 milljón króna.

Vert er þó að taka fram að á árinu 2019 var hald­inn lands­fundur Vinstri grænna og gefin út veg­leg bók um sögu hreyf­ing­ar­innar í til­efni af 20 ára afmæli henn­ar. Sam­an­lagður kostn­aður við það á því ári var rúm­lega 20 millj­ónir króna.

Auglýsing
Flokkurinn átti eignir upp á 118,5 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Þar af var hand­bært fé 112,8 millj­ónir króna en það nán­ast tvö­fald­að­ist frá árinu áður. 

Vinstri græn eru skuld­léttur stjórn­mála­flokk­ur, heild­ar­skuldir hans voru 3,7 millj­ónir króna í lok síð­asta árs, og skuld­irnar lækk­uðu úr 9,3 millj­ónum krónum á síð­asta ári. 

Eina fast­eignin sem flokk­ur­inn á er hús­næði við Brekku­götu á Akur­eyri sem bók­fært er á fimm millj­ónir króna. Fast­eigna­mat þess er hins vegar 14,7 millj­ónir króna.

Helm­ingur fram­laga frá ein­stak­lingum á síð­ustu ári komu  frá þing­mönnum og starfs­mönnum Vinstri grænna. 

Fram­lög til flokka úr rík­­is­­sjóði hækkuð gríð­­ar­­lega

Fram­lög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­sent var sam­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­ónir króna. 

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­­­mála­­flokkar sem fengu nægj­an­­legt fylgi í síð­­­ustu þing­­kosn­­ingum til að fá úthlutað fjár­­munum úr rík­­is­­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári. 

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­­trúa á þingi auk Sós­í­a­lista­­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­­legt fylgi í síð­­­ustu kosn­­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­­hæð og flokk­­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­­­anir stjórn­­­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­­­mála­­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­­ónir króna úr rík­­is­­sjóði á fimm ára tíma­bil­i. 

Til við­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­manna þing­­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­­menn stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka og fram­­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­­um. Hámarks­­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­­greindur í árs­­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­­­mála­­­flokk­anna skila árs­­­reikn­ingum sínum til rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun hætti að birta tak­­­mark­aðar upp­­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­­ur­­­skoð­end­­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­­arnir þó ekki að sæta því að árs­­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga eins flokks, Pírata, vegna síð­asta árs. Kjarn­inn mun fjalla um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á næstu dög­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent