Yfir hundrað ríki heita því að hætta eyðingu skóga fyrir 2030

Yfir hundrað þjóðarleiðtogar hafa gerst aðilar að yfirlýsingu um að hætta eyðingu skóga fyrir árið 2030. Bent hefur verið á að svipuð yfirlýsing frá árinu 2014, þó hún hafi verið smærri í sniðum, hafi skilað afar litlum árangri.

Gríðarmiklu skóglendi er fórnað víða um heim í dag, ekki síst undir framleiðslu á pálmaolíu.
Gríðarmiklu skóglendi er fórnað víða um heim í dag, ekki síst undir framleiðslu á pálmaolíu.
Auglýsing

Fleiri en 100 ríki hafa ákveðið að ger­ast aðilar að yfir­lýs­ingu þar sem því er heitið að hætta eyð­ingu skóg­lendis fyrir árið 2030 og byrja að snúa þró­un­inni við. Rúm 85 pró­sent skóg­lendis í heim­inum er innan landamæra þeirra ríkja sem ætla sér að taka þátt.

Á meðal þeirra ríkja sem munu ger­ast aðilar að yfir­lýs­ing­unni eru sum þeirra ríkja heims sem ryðja mest skóg­lendi á hverju ári; Brasil­ía, Indónesía og Tansan­ía, svo nokkur séu nefnd.

Þessi skóg­ar­samn­ingur má segja að séu fyrstu stóru tíð­indin sem borist hafa frá Cop26-ráð­stefn­unni í Glas­gow til þessa, en þar eru nú yfir 120 þjóð­ar­leið­togar sam­an­komnir til þess að ræða um lofts­lags­mál og hvernig efna skuli skuld­bind­ing­arnar sem fólust í Par­ís­ar­sátt­mál­anum frá árinu 2015.

Auglýsing

Ísland er á meðal þeirra ríkja sem taka þátt í skóg­ar­sam­komu­lag­inu, en það felur meðal ann­ars í sér að ríkin lýsa því yfir að þau ætli sér að vernda skóga og hraða end­ur­reisn þeirra og beita sér fyrir sjálf­bærum við­skipta­háttum sem keyri ekki áfram land­eyð­ingu og slæma land­notk­un.

2.500 millj­arðar íslenskra króna

Sam­kvæmt fréttum erlendra miðla felur yfir­lýs­ingin í sér að 19,2 millj­örðum banda­ríkja­dala, jafn­virði rúm­lega 2.500 millj­arða íslenskra króna, verði veitt til stuðn­ings þess­ara mark­miða, meðal ann­ars til þeirra ríkja sem ein­setja sér nú að hætta að eyða skógi og snúa þróun skóg­lendis í heim­inum við.

Tólf millj­arðar dala koma frá rík­is­stjórnum og einka­fyr­ir­tæki koma með 7 millj­arða dala að borð­inu. Þá hafa yfir þrjá­tíu alþjóð­legar fjár­mála­stofn­anir einnig heitið því að hætta að fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem eru ábyrg fyrir eyð­ingu skóga.

Umhverf­is­vernd­ar­sam­tök hafa sum sagt yfir­lýs­ing­una geta orðið skref í rétta átt, en þó hefur verið bent á að yfir­lýs­ing ríkja frá 2014, New York-­yf­ir­lýs­ingin um skóg­lendi, hafi ekki skilað til­ætl­uðum árangri þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit þeirra hart­nær fjöru­tíu rík­is­stjórna sem að henni stóðu.

Fimm ára stöðu­mat þeirrar yfir­lýs­ingar frá árinu 2019 leiddi í ljós að lítið benti til þess að þau ríki sem rit­uðu undir yfir­lýs­ing­una væru á réttri leið.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent