Þjóðhættir – „Þeim mun meiri vinna, þeim mun meira stuð“

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Ólöfu Breið­fjörð þjóð- og safna­fræð­ing sem starfar sem menn­ing­ar­full­trúi Garða­bæj­ar. Í þætt­inum segir Ólöf frá náms­ferl­inum og starfs­ferl­in­um.

Ólöf var orðin 37 ára þegar hún ákvað að fara í nám. Hún vildi að námið væri skemmti­legt en jafn­framt hag­nýtt. Í þætt­inum segir Ólöf frá grunn­námi sínu í þjóð­fræði þar sem hún meðal ann­ars skrif­aði áhuga­verða BA-­rit­gerð um hjálækn­ingar óperu­söngv­ara. Hún deilir líka með okkur nokkrum góðum ráðum sem hún rakst á við rit­gerð­ar­skrifin til að gæta radd­ar­inn­ar. Ólöf segir einnig frá meist­ara­námi sínu í safna­fræði og hvernig hún fékk drauma­starfið á Þjóð­minja­safn­inu að námi loknu. Því næst lá leið Ólafar í Kópa­vog þar sem hún starf­aði að menn­ing­ar­málum sem verk­efna­stjóri fræðslu og miðl­un­ar. Í dag starfar hún, eins og áður seg­ir, sem menn­ing­ar­full­trúi Garða­bæjar og sinnir fjöl­breyttum verk­efnum við að halda uppi öfl­ugu menn­ing­ar­starfi í bæn­um.

Nú er í gangi barna­menn­ing­ar­há­tíð og er mikil dag­skrá í til­efni henn­ar. Ólöf segir einnig frá spenn­andi verk­efnum sem eru á döf­inni í Garða­bæn­um, meðal ann­ars marg­miðl­un­ar­sýn­ingu í land­náms­bænum í minja­garð­inum á Hofs­stöðum og á Garða­torgi. Í sumar verður bursta­bær­inn Krókur á Garða­holti opinn og ýmsir við­burðir þar.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023