Ólafur Jón Sívertsen
Auglýsing

Sjón­varps­stöðin Hring­braut hefur legið undir rétt­mætri ­gagn­rýni fyrir að skrifa frétt upp úr pistli gervi­manns sem birt­ist á síð­u ­mið­ils­ins í skömmu fyrir ára­mót. Fréttin snérist um áhyggjur pistla­höf­und­ar­ins Ólafs Jóns Sívert­sen af þróun fjöl­miðla á Íslandi sem hann telur að séu komn­ir undir hæl­inn á pen­inga­öflum og valda­hópum sem tengdir eru stjórn­mála­flokkum eða hags­muna­hóp­um. Ólafur Jón fjallar sér­stak­lega um DV og telur sig hafa heim­ild­ir ­fyrir því að fjár­munir til rekstrar allra miðla undir stjórn Björns Inga Hrafns­son­ar, sem hann kallar flokksmiðla Fram­sókn­ar, séu komnir frá nánust­u ætt­ingjum og vinum Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi gervi­maður heldur þessu fram.

Per­sónan Ólafur Jón Sívert­sen er ekki af holdi og blóð­i. Hann er ekki skráður í þjóð­skrá og Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, sjón­varps­stjóri Hring­braut­ar, hefur sagt frá því opin­ber­lega að hann sé til­bú­inn karakter sem ­þjóð­þekktur maður skrifi í gegn­um. Það eina sem er ekta við Ólaf Jón Sívert­sen er myndin sem hann birtir með pistl­unum sín­um. Hún er keypt úr mynda­safn­in­u Alamy og heitir þar ein­fald­lega, í íslenskri þýð­ingu, mynd af manni með­ ­gler­augu (e. Portrait of a man wear­ing glasses). Mað­ur­inn er sam­kvæmt lýs­ingu mið­aldra sveita­maður sem hrífst af úti­veru. Sam­kvæmt verð­skrá hef­ur Hring­braut greitt um 35 evr­ur, tæpar fimm þús­und krón­ur, fyrir mynd­ina.  

Auglýsing

Þótt að ein­hver sé raun­veru­legur eig­andi and­lits­ins sem notað er til að skreyta pistla gervi­manns­ins þá breytir það, eða útskýr­ing­ar ­sjón­varps­stjór­ans, engu um að vinnu­brögð Hring­brautar í þessu máli eru út í hött. Meira að segja blaða­maður mið­ils­ins tekur undir það. Með því að birta pistla á vett­vangi gervi­manns og gera síðan frétt úr skoð­unum gervi­manns­ins, er ein­fald­lega verið að búa til fréttir án þess að hafa nokkuð annað en vilj­ann til þess að þær séu sannar sem grund­völl. Það er væg­ast sagt ófag­legt og til­ þess fallið að draga úr trú­verð­ug­leika fjöl­miðl­unar á Ísland­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None