Auglýsing

Það er ótrú­leg staða uppi á Íslandi. For­sæt­is­ráð­herra ­þjóð­ar­innar hóf dag­inn á því að lýsa því yfir að til­vera rík­is­stjórn­ar­inn­ar héngi ekki á blá­þræði. Nokkrum klukku­tímum síðar reyndi hann að sækja sér umboð til­ að rjúfa þing án þess að ræða við eigin þing­flokk. Án þess að ræða við ­sam­starfs­flokk sinn í rík­is­stjórn. Eða svo segir for­seti þjóð­ar­innar að minnsta ­kosti. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir hann ljúga.

Ástæð­an: Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vildi ekki styðja hann áfram í emb­ætti í ljósi þess að hann er full­kom­lega rúinn öllu trausti vegna hags­muna­á­rekstra, blekk­inga, lyga, óheið­ar­legra árása á fjöl­miðla og hræði­legra á­hrifa ákvarð­ana hans á orðstír Íslands á alþjóða­vett­vangi. Bjarn­i Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, stað­festi þennan skiln­ing í við­tölum í dag þegar hann sagði Sig­mund Davíð hefði boðið sér tvo kosti á fund­i í morg­un, annað hvort óskor­aðan stuðn­ing við sig sem áfram­hald­and­i ­for­sæt­is­ráð­herra eða þing­rof. Þing­rofs­heim­ild­ina hafi Sig­mundur Davíð sótt til­ að „veifa framan í sig“.

Sig­mundur Davíð virt­ist vera nán­ast eini mað­ur­inn á Ísland­i ­sem átt­aði sig ekki á því í morgun að hann gæti ekki verið áfram ­for­sæt­is­ráð­herra. Að sú staða sem er uppi á Íslandi, og dró um 20 þús­und manns á Aust­ur­völl í gær, er honum að kenna, engum öðr­um. Hún er afleið­ing gjörða hans. Í stað þess að sýna auð­mýkt gagn­vart því reyndi hann stans­laust að finna aðra söku­dólga fyrir sínu sjálf­skap­ar­víti. Og hefur alls ekki beðist afsök­unar á öðru en að hafa komið illa fyrir í við­tali.

Sig­mundur Davíð ætl­aði að vaða áfram. Þar til að aðrir sett­u honum stól­inn fyrir dyrn­ar.

Óskor­aði leið­tog­inn

Það er í raun ekk­ert nýtt að Sig­mundur Davíð leiki ein­leik­i. Frá því að hann steig inn í stjórn­mál árið 2009, og bjarg­að­i Fram­sókn­ar­flokkn­um, hefur hann sniðið flokk­inn algjör­lega að sér og sín­um hugð­ar­efn­um. Stefnu­skrá Fram­sóknar árið 2009 er gjör­ó­lík því sem hún er í dag. Í raun eins og svart og hvítt. Eftir mik­inn kosn­inga­sigur árið 2013 komu margir nýir þing­menn Fram­sóknar inn á þing sem til­eink­uðu sér strax ­gagn­rýn­is­lausa hlýðni við for­mann­inn. Leið­toga sinn.

Sig­mundur Davíð hefur nýtt sér þessa stöðu til að gera það ­sem hann vill í stóli for­sæt­is­ráð­herra. Hann hefur teygt sig inn á starfs­svið ann­arra fagráð­herra á hátt sem hefur ekki þekkst, til að mynda með­ ­skipu­lags­blæti sínu gagn­vart veru flug­vallar í Vatns­mýri, færslu nýs Lands­spít­ala og upp­bygg­ingu á Hafn­ar­torgi. Allt voru þetta mál sem heyrð­u undir önnur ráðu­neyti en hans. Hann hefur einnig farið út með upp­lýs­ingar um við­kvæm mál á tímum sem hann mátti alls ekki gera það. Það var til að mynda mjög skýrt þegar hann opin­ber­aði hug­myndir um stöð­ug­leika­skatt á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins ­fyrir ári. Það var gert án vit­undar og vilja allra ann­arra sem komu að hafta­los­un­ar­mál­um, líka Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Auglýsing

Og það er ekk­ert leynd­ar­mál að mörgum sjálf­stæð­is­þing­mönn­um, ­meira að segja sumum ráð­herrum flokks­ins, er meinilla við hvernig Sig­mund­ur Da­víð hefur valið að stjórna og haga sér almennt. Þeir hafa umborið hann, en ekki ­stutt.

Verður skugga­for­sæt­is­ráð­herra

Þess vegna er sú lausn sem verið er að bjóða upp á vart ­boð­leg. Að rík­is­stjórnin haldi áfram með nýjan öku­mann, hvort sem það verð­ur­ ­Sig­urður Ingi Jóhanns­son, Bjarni Bene­dikts­son eða jafn­vel for­seti Alþing­is, Einar K. Guð­finns­son. Hún er vart boð­leg vegna þess að Sig­mundur Davíð verð­ur­ á­fram for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og þing­mað­ur. Hann verður áfram fyr­ir­ferða­mik­ill í aft­ur­sæti rík­is­stjórn­ar­bíls­ins og mun skipta sér beint af hverri beygju sem ­tekin verð­ur. Sig­mundur Davíð hættir sem for­sæt­is­ráð­herra, en verður þess í stað skugga­for­sæt­is­ráð­herra. Það gæti meira að segja hentað honum enn betur því þá getur hann deilt og drottn­að, en látið aðra flokks­menn sína bera ábyrgð á ákvörð­un­um sínum út á við.

Og lausnin er líka hönnuð til að halda póli­tísku lífi í Sig­mundi Dav­íð. Hann getur þá í vari und­ir­búið að leiða Fram­sókn­ar­flokk­inn inn í næstu kosn­ing­ar. Eftir sem áður mun þetta allt saman snú­ast um hann. ­Leið­tog­ann. Ofur­mann­inn.

Traustið á íslensk stjórn­mál hefur verið veru­lega laskað frá­ hruni. Nú er það far­ið. Það er ýmsum að kenna, en stærsta sök ber Sig­mund­ur Da­víð Gunn­laugs­son. Áfram­hald­andi þátt­taka hans í rík­is­stjórn, þótt hún verð­i ó­bein úr aft­ur­sæt­inu, mun ekki gera neitt til að laga það með neinum hætti. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verður að vera læs á þá stöðu ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er það ekki í á­fram­hald­andi með­virkniskasti sínu. Rík­is­stjórn­ar­sam­starf við flokk þar sem ­Sig­mundur Davíð er enn for­maður getur ekki verið val­kost­ur. Íslensk stjórn­mál ­geta ekki lengur ákvarð­ast af því sem hann vill og/eða heimt­ar. Hann er vanda­mál­ið, ekki hluti af lausn­inni. Síð­ustu dagar og vikur hafa ­sýnt það svo skýrt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None