Engar eldgosamyndir í þetta skiptið

Orðspor Íslands erlendis er í molum eftir hneykslismál vegna tengsla ráðamanna við aflandsfélög. Magnús Halldórsson hefur fengið umræðuna beint í æð, í New York.

Auglýsing

Ég eyddi drjúgum tíma í gær, þegar ég sótti strák­ana mína í skól­ann hér í New York, að ræða um íslensk stjórn­mál við for­eldra bekkj­ar­fé­laga þeirra. Þeir spurðu mik­ið, og sgðu það koma á óvart að for­sæt­is­ráð­herra Ísland hafi komið við sögu í umfjöllun um Panama­skjöl­in.

Fari þið norður í land

Ég varði nú Ísland alveg út í eitt, í sam­töl­un­um, og end­að­i á því að segja fólk­inu að það þyrfti að heim­sækja Norð­aust­ur­landið ef það kæmi til Íslands. Það væri alveg ein­stakt svæði. Ég enda yfir­leitt á því, þegar Ísland ber á góma.

Tengslin er nóg

Að öllu gamni slepptu, þá er ekki hægt annað en að hafa ­miklar áhyggjur af orð­spori Íslands erlend­is, vegna þess­arar umræðu og umfjöll­unar sem farið hefur fram um tengsl ­ís­lenskra ráða­manna við aflands­fé­lög á lág­skatta­svæðum og skatta­skjólum eins og Tortóla. Það eitt að tengj­ast félögum í gegnum eign­ar­hald, beint eða óbein­t, ­þykir hneyksli. Umfjöll­unin í Banda­ríkj­un­um, sem hefur ekki verið eins mikil og í Evr­ópu – þó eru aðal­fréttir í gær og í dag á öllum stærstu miðlum lands­ins – hefur fyrst og fremst snú­ist um þessar útlínur máls­ins sem teng­ist Íslandi. Það er að ráða­menn á Íslandi hafi tengst félögum sem skráð voru á aflandseyj­um, og að eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra hafi verið skráð fyrir félag­inu Wintris á Tortóla.

Auglýsing

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kemur í Alþingishúsið, nú undir kvöld. Mynd: Birgir.

Sér­ís­lenskar hliðar

Lítið er rætt um sér­ís­lenska hlið máls­ins, það er 500 millj­óna króna kröfu­lýs­ingu félags­ins í slitabú föllnu bank­anna, sem síðan urðu að ein­u að­al­við­fangs­efni stjórn­valda, þegar kom að áætlun um afnám hafta. Og síð­an höftin sjálf, það er að ráða­menn lands­ins eigi pen­inga­legar eignir erlendis á meðan höft er lög­fest á almenn­ing, þar sem meg­in­mark­miðið er að koma í veg ­fyrir að fólk geti fært pen­inga sína úr landi.

Fræði­menn í Col­umbia stein­hissa

Ég var að ræða um þetta í gæt við félaga minn hér úti frá­ Eg­ypta­landi, sem er doktor í töl­fræði og vinnur við Col­umbi­a-há­skóla. Hann ­gerði grín að mér vegna þessa máls, og spurði hvort ég væri nokkuð með­ ­reikn­inga á Tortóla, og hló svo við, á meðan synir okkar bekkj­ar­fé­lag­arnir léku sér. Hann bætti við að málið hefði komið til­ um­ræðu í skól­anum hjá honum í gær, og voru menn stein­hissa á því að leið­togi Íslands­ hefði verið með pen­inga í félagi á Tortóla. „Þetta eru smá­aurar miðað við Mubarak,“ bætti hann svo við og hló.

Risa­vaxið hneyksli

Það má vera að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Bjarn­i Bene­dikts­son og Ólöf Nor­dal telji þessi mál létt­væg og rétt­læt­an­leg, eða hafi talið það á ein­hverjum tíma­punkti. En það er ekki rétt hjá þeim, eins og und­an­farnir dag­ar ­stað­festa. Málið er risa­vaxið alþjóð­legt hneyksl­is­mál þar sem orð­spor Íslands­ er und­ir. Í ljósi umfangs umfjöll­un­ar­inn­ar, og hvernig málið er vax­ið, þá er þetta nær bara nei­kvæð aug­lýs­ing fyrir Ísland, í boði ráða­manna lands­ins. Engar stór­brotnar myndir af eld­gosum í þetta ­skipt­ið.

Lág­marka tjónið

Nú reynir á starfs­stjórn­ina sem er að fara taka við völd­um, að reyna að lág­marka tjón­ið, en það mun koma hlut nýrrar rík­is­stjórnar frá haust­mán­uðum að ­reyna að skapa traust og færa alla hags­muni kjör­inna full­trúa upp á borð. Ekk­ert annað getur komið til greina fram­veg­is, eftir þessi ósköp.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None