Spilum saman!

Auglýsing

Í dag er nor­ræni leikja­dag­ur­inn Nor­dic Game Day! Þá veita bóka­söfn og aðrar stofn­anir tölvu­leikjum og spilum sér­staka athygli. Í ár taka yfir 170 bóka­söfn þátt á Norð­ur­lönd­unum og þar af eru tíu bóka­söfn á Íslandi. Borg­ar­bóka­safnið í Reykja­vík og Amts­bóka­safnið á Akur­eyri eru meðal þeirra bóka­safna sem bjóða upp á fjöl­breytta dag­skrá hér á landi. Gestir geta m.a. sest niður og spilað borð­spil, tölvu­leiki, prófað sýnd­ar­veru­leika, skellt sér í Poké­mon GO göngutúr eða tekið þátt í nor­rænni tölvu­leikja­keppni svo eitt­hvað sé nefnt.

Tölvu­leikja­spil­arar í dag sam­an­standa af mjög fjöl­breyttum hópi. Kynja­hlut­fall tölvu­leikja­spil­ara er nán­ast jafnt og með­al­aldur tölvu­leikja­spil­ara er yfir 30 ára sam­kvæmt tölum frá Banda­ríkj­unum (Enterta­in­ment Software Associ­ation) og Evr­ópu (Inter­act­ive Software Feder­ation of Europe) þar sem annar til þriðji hver maður spilar tölvu­leiki. Tölvu­leikja­spil­arar eru ungir sem aldn­ir, konur sem karl­ar. Fyrir svo fjöl­breyttan hóp þarf fjöl­breytt úrval tölvu­leikja. Í umræð­unni gleym­ist stundum að  ­tölvu­leikir eru ekki ein­göngu spil­aðir í ein­rúmi, eða til að drepa óvini eða tíma, heldur geta tölvu­leikir líka verið félags­legir og fjöl­skyldu­væn­ir. Lítum á nokkur dæmi.

Poké­mon GO er nýlegt dæmi um tölvu­leik þar sem að fjöl­skyldan getur spilað leik og notið úti­ver­unnar sam­an. Leik­ur­inn er bein­tengdur við stað­setn­ingu spilar­ans sem þarf að koma sér á milli staða í þeim til­gangi að safna auka­hlutum og veiða Poké­monaLitt­leBig­Pla­net leikja­ser­ían er annað gott dæmi um fjöl­skyldu­vænan tölvu­leik þar sem spil­arar vinna saman að því að leysa þrautir og kom­ast fram­hjá hindr­unum með því að stjórna krútt­legum tusku­dýr­um. Ef óskað er eftir meira krefj­andi leik er hægt að skoða Kalimba sem er tveggja manna þrauta­leikur sem byggir mikið á sam­vinnu (og þol­in­mæð­i) spil­ara. Fyrir reynd­ari spil­ara er hægt að skella sér í geimæv­in­týri í Affor­da­ble Space Adventures á Wii U leikja­tölv­unni þar sem spil­arar stjórna geim­skipi og leysa fjöl­breyttar þraut­ir. Spil­arar stjórna geim­skip­inu í sam­ein­ingu og skiptir sam­vinna þess vegna miklu máli í leikn­um.

Auglýsing

Flestir tölvu­leikja­spil­arar þekkja ítalska píparann Mario, en til eru fjöl­margir Super Mario Bros. leikir sem eru ein­stak­lega fjöl­skyldu­vænir og ætl­aðir öllum ald­urs­hóp­um. Í mörgum af nýjustu Mario leikj­unum geta allt að fjór­ir spil­arar spilað leik­inn á sama tíma og unnið sam­an. Super Mario Bros. leik­irnir byggja á sömu klass­ísku hug­mynd­inni sem er í grunn­inn ein­föld, skemmti­leg og laus við óþarfa ofbeld­i. Mario kemur fram í mun fleiri leikjum en bara Super Mario Bros. ser­í­unni frægu. Í Mario Maker geta spil­arar búið til sín eig­in Super Mario Bros. borð frá grunni og leyft svo öðrum að prófa þau, bæði í gegnum netið og heima í stofu. Í Mario Kart kappakst­ur­sleikja­ser­í­unni keppa spil­arar um fyrsta sætið og stjórna þekktum per­sónum úr heimi tölvu­leikj­anna. Hægt er að finna fleiri leiki sem eru í svip­uðum dúr og má þarf nefna LEGO leikja­ser­í­una og Rayman Legends.

Til eru fjöl­margir leikir sem krefj­ast þess að spil­ar­inn hreyfi sig, til dæmis margir Nin­tendo Wii og Kinect leik­ir. Í Just Dance leikja­ser­í­unni eiga spil­arar að dansa í takt við tón­list og fylgja dans­hreyf­ingum sem birt­ast á skjánum í þeim til­gangi að safna stig­um. Annað dæmi sem gæti komið blóð­inu af stað er Wari­oWareSmooth Moves Í honum þurfa spil­arar að bregð­ast hratt og rétt við ótrú­lega skondnum aðstæðum eins og að blaka vængjum til að fljúga, hreyfa mjaðm­irnar til að halda húl-hring uppi og slá flugur með flugna­spaða. Leik­ur­inn er pakk­aður af örleikjum þar sem hver leikur er ekki nema um fimm sek­úndur í spil­un.

Þetta er aðeins brot af þeim fjöl­mörgu tölvu­leikjum sem vinir og fjöl­skyldur geta spilað sam­an. Spilum saman og höfum gaman á Nor­dic Game Day

Höf­undur er rit­stjóri Nörd Norð­urs­ins og fram­halds­skóla­kenn­ari.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None