Ég starfaði sem hjúkrunarkona í 40 ár á sviði Slysadeildar Borgarspítalans. Eftir áratuga vinnu á slíkum stað kynnist maður öllum hliðum og þáttum mannlífsins, - sorgum og gleði - allt frá stórslysum til minni áverka. Dauðsföll á öldnum sem ungum var erfiðast að vinna úr. Oft fór maður heim, miður sín og bugaður eftir sumar spítalavaktirnar. Heimilisofbeldi, misnotkun á börnum og misþyrmingar á konum var einnig tilfinningalega erfiðast að vinna við og taka á móti. Mörg tilfelli hafa fylgt mér alla ævi. Áfallahjálp fyrir starfsfólk var ekki til á þessum árum.
Fyrir tveimur árum síðan stóð ég sjálf berskjölduð frammi fyrir ljótleika heimilisofbeldis. Martröðin var rétt að byrja. Myndir um þau ljótu tilvik ofbeldis sem ég hafði séð og tekið á móti á Slysadeild birtust skyndilega heima hjá mér. Yngsta dóttirin kom til mín, snemma að morgni dags, rétt sloppin úr klóm mannsins sem hún bjó með. Hafði hann meira og minna misþyrmt henni alla nóttina og svipt hana frelsi til útgöngu úr húsinu.
Fyrir framan mig stóð unga, fallega, góða dóttir mín - niðurbrotin manneskja á líkama og sál. Sítt hárið hékk í tætlum niður eftir bakinu eftir að hann dró hana fram og til baka á hárinu. Hársvörðurinn var þakinn kúlum. Hún var rispuð og marin í andliti. Hálsinn var þakinn marblettum beggja vegna eftir kyrkingstak fingra. Eyrun bólgin, hvellrauð og brjóskið marið eftir að hann hélt í eyrun til að lemja höfðinu niður í stólinn og steingólfið. Það blæddi úr eyrnahlustinni öðru megin. Skafsár voru á herðablöðum og mjóbaki eftir að hann dró hana á bakinu eftir steingólfinu. Fingraför/marblettir voru á báðum framhandleggjum. Rispuð og marin á mjöðm og fótum, helaum yfir brjóstbeini.
Mitt í öllum stjórnlausum ofstopanum ógnaði hann henni með rafmagnsborvél. Hann er sterkur maður, ekkert mál fyrir hann að keyra hana ofaní stólinn, lyfta henni upp ásamt stólnum og skella henni, baki og höfði, ítrekað í gólfið.
Mistök á mistök ofan ollu því að máli dóttur minnar, Guðrúnar Guðmundsdóttur (Rúnu) var vísað frá Hæstarétti vegna formgalla frá hendi ákæruvaldsins.
Að öðlast réttlæti fyrir ranglæti – fór fyrir lítið. Hver ætlar að svara fyrir það?