Í grein sem fráfarandi landbúnaðarráðherra skrifar í Kjarnann í dag er meinleg villa sem verður að leiðrétta.
Setning Þorgerðar Katrínar er eftirfarandi: „…MS sem er það fyrirtæki sem státar af þeim vafasama heiðri að vera einn stærsti innflytjandi sykurs á Íslandi...“
MS flytur ekki inn sykur. Tæplega 15 þúsund tonn af sykri og sætindum voru flutt inn árið 2016 skv. tölum Hagstofunnar. Ekkert af því var á vegum MS. MS kaupir árlega um 1-2% af þeim innflutningi í sína framleiðslu en stærstu aðilarnir í kaupum á sykri eru um 10 sinnum stærri en MS. Þetta er ekki stórt hlutfall þegar haft er í huga að MS er stærsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins og vinnur úr um 150.000 tonnum af mjólk árlega. Um 92% af allri mjólk á Íslandi fara í vörur án viðbætts sykurs eða sætuefna.
En hversu mikið af viðbættum sykri í okkar matarræði kemur þá frá mjólkurvörum? Embætti landlæknis í samstarfi við Matvælastofnun hefur framkvæmt ítarlegar rannsóknir á matarræði Íslendinga. Þar kemur í ljós að Íslendingar fá mest af viðbættum sykri úr gosdrykkjum og söfum, sælgæti, kökum, kexi og ís eða samtals um 80%. Mjólkurvörur telja þar aðeins um 6% að bragðefnum meðtöldum. Það er rétt að finna má viðbættan sykur í vörum MS en undanfarin ár hefur það magn minnkað um 8-30% í algengum vörum. Eitt helsta viðfangsefni þróunarsviðs MS er að minnka sykur í bragðbættum vörum enn frekar.
Þegar þessar staðreyndir eru skoðaðar má sjá að fráfarandi ráðherra hefur verið illa upplýstur um sykurnotkun í íslenskum matvælaiðnaði á sínum skamma embættistíma.
Við hvetjum alla áhugasama til að kynna sér málið nánar á vef MS.
Höfundur er verkefnastjóri í upplýsinga- og fræðslumálum MS.