Ég hata sjálfa mig

Oddviti Flokks fólksins skrifar um einelti.

Auglýsing

Þetta voru orð ungrar stúlku sem lögð hafði verið í ein­elti flest árin sín í grunn­skóla. Afleið­ingar ein­eltis geta verið lífs­hættu­leg­ar. Ein­elti getur skilið eftir sig ævi­löng til­finn­inga­leg ör. Sú óbæri­lega þján­ing sem þolendur ein­eltis hafa mátt þola fylgir þeim gjarnan út ævina.  Í sumum til­vikum hefur langvar­andi ein­elti leitt ung­linga til að fremja sjálfs­víg.

Reykja­vík­ur­borg ber ábyrgð­ina á að fjár­magn og mann­afli sé til staðar ef ein­hvern tím­ann á að takast að útrýma ein­elti. Reykja­vík­ur­borg hefur brugð­ist í þessum mála­flokki eins og fleirum er varðar börnin í borg­inni. Ástæðan er ekki sú að það skorti fé heldur eru börnin hvergi nærri í for­gangi hjá borg­ar­meiri­hlut­an­um. Í for­gangi eru aðrir hlut­ir, dauðir hlutir sem vel mega bíða. Gleymum ekki að inn í borg­ar­sjóð koma á annað hund­rað millj­arðar ár hvert. Engu að síður hafa biðlistar í fag­þjón­ustu fyrir börnin lengst og virð­ist orðið rót­gróið vanda­mál.

Flokkur fólks­ins vill rífa biðlista upp með rót­um. Flokkur fólks­ins býður fram undir kjör­orð­inu FÓLKIÐ FYRST. Við líðum ekki að börn, for­eldrar og skóla­kerfið sé látið mæta afgangi.

Auglýsing

Sem odd­viti Flokks fólks­ins til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga í vor og sem sál­fræð­ingur er mér mikið í mun að þessi mál kom­ist í full­nægj­andi far­veg í öllum skólum og íþrótta- og æsku­lýðs­fé­lögum borg­ar­inn­ar. Fræðslu og for­varnir má aldrei skorta í þessum mála­flokki. Bolt­anum þarf að vera haldið á lofti allt árið.

Flokkur fólks­ins mun sjá til þess að sér­hver skóli hafi sinn sál­fræð­ing sem ásamt náms­ráð­gjafa og skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ingi verða í þéttu og reglu­legu sam­tali við börnin og for­eldra þeirra um þessi mál. Umfram allt þarf að hlusta á börnin ef þau gefa hið minnsta í skyn um að þeim sé strítt eða þau lögð í ein­elti.

Kenn­ar­inn einn og sér getur ekki bæði sinnt for­vörn­um, tekið eftir öllu því sem fram fer í barna­hópnum og tekið einn og sér á málum komi þau upp. Í kringum kenn­ara, umsjón­ar­manna hópa, íþrótta- og æsku­lýðs­full­trúa og þjálf­ara þarf að vera öfl­ugt teymi sem skipu­leggur for­varnir og tekur á málum strax og þau koma upp.

Reykja­vík­ur­borg er yfir­vald leik- og grunn­skóla, tóm­stunda­starfs og frí­stunda­heim­ila borg­ar­inn­ar. Stefna borg­ar­innar og fram­kvæmd hennar skiptir sköpum þegar kemur að raun­veru­legri útrým­ingu ein­elt­is. Borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn hefur sofið á  verð­inum þegar kemur að for­vörnum gegn ein­elti. Stað­reyndin er sú að börn verða fyrir stríðni og ein­elti í fjöl­mörgum stofn­unum borg­ar­inn­ar. Ábyrgðin er borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans!

Á þess­ari vakt mun Flokkur fólks­ins ekki sofa. Við setjum fólkið í fyrsta sæti og gleymum ekki að EIN­ELTI DREP­UR.

Höf­undur skipar 1. sæti Flokks fólks­ins í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar