Eitt prósent - glæpasamtök eða yfirstétt

Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs Starfsgreinafélags, fjallar um verkalýðsbaráttuna og þau verkefni sem hann telur vera framundan hjá ASÍ.

Auglýsing

Eina pró­sentið var lengi lyk­il­merki mót­or­hjóla­klúbba, með skírskotun til þess að með­lim­irnir væru ekki á meðal þeirra 99% fólks sem væri lög­hlýð­ið. Merk­ingin á eina pró­sent­inu hefur fengið aðeins aðra merk­ingu nú – en þó ekki svo ólíka.

Þeir sem til­heyra rík­asta pró­senti íbúa heims­ins og þá ekki síður Íslands, virð­ist ekki líta á að þeir þurfi að hlýða lögum og taka þátt í sam­fé­lag­inu. Þessi hluti íbú­anna virð­ist gera allt til þess að losna við skatta og skyldur og hefur á síð­ustu ára­tugum með blekk­ing­um, mút­um, ógn­unum og und­ir­ferli tek­ist að sölsa undir sig megnið af auð­æfum og auð­lindum jarð­ar­inn­ar.

Græðginni eru engin tak­mörk sett og það virð­ist ekki skipta máli hvort fólk er orðið svo ríkt að því dygðu ekki 100 manns­aldrar til að sóa auð­æf­unum – áfram er hvers kyns und­ir­ferli og svikum beitt til að auðg­ast enn frekar, fela auð­æfin og losna við rétt­láta skatta. Áfram er svindlað á launa­fólki og svikið og logið á bæði borð.

Auglýsing

Fólk gæti ætlað að þetta væri bara vanda­mál úti í hinum stóra heimi og í hinum synd­umspilltu sam­fé­lög­um. Rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis í kjöl­far síð­asta efna­hags­hruns svo og aðrar upp­lýs­ingar sem fram hafa komið síðar – sýna hins vegar að þetta er allt á sömu bók­ina hér.

Rík­ustu ætt­irnar hafa náð að sölsa undir sig völd, með flóknu tengsla­neti í stjórn­kerf­inu og við­skipta­líf­inu. Fjöl­miðlar halda okkur svo upp­teknum af hvers kyns upp­á­komum og smá­fréttum á meðan öllu því sem ekki er nagl­fast – er stolið fyrir framan augun á okk­ur.

Mis­rétti hefur auk­ist

Síð­ustu ára­tugi hefur félags­hyggju­fólk á vest­ur­löndum talið, að „sam­tals­stjórn­mál“ væru mál­ið. Að með því að eiga sam­talið myndi skiln­ingur milli hópa aukast og okkur tæk­ist að auka rétt­læt­ið. Sann­leik­ur­inn er sá að mis­réttið er sífellt að aukast og rík­asta pró­sentið hlær alla leið í bank­ann á meðan við hin sitjum ein­hver mál­þing.

Sam­staða meðal launa­fólks hefur verið að rofna síð­ustu ár. Ein­stakir hópar hafa klofið sig frá og spila frítt spil – axla enga sam­eig­in­lega ábyrgð og bara taka allt sem hægt er. Víða í nágranna­löndum okkar er verka­lýðs­hreyf­ingin magn­vana og sundruð og þar fer valda­stéttin öllu fram að eigin geð­þótta.

Átök innan Alþýðu­sam­bands­ins hafa mjög veikt mögu­leika sam­bands­ins til að vera sá öldu­brjótur sem Alþýðu­sam­bandið hefur verið í hund­rað ár og varið almennt launa­fólk fyrir græðgi valda­hópanna. Verk­efni næstu ára er að efla sam­stöðu innan Alþýðu­sam­bands­ins. Það þarf að styrkja aðild­ar­fé­lögin til sjálf­stæðrar kjara­bar­áttu og und­ir­búa sam­bandið allt fyrir fyr­ir­sjá­an­leg átök – um grund­vall­ar­at­riði sam­fé­lags­ins. Í þeirri bar­áttu þarf allt skyn­samt fólk að standa saman – hvar í flokki sem það ann­ars stendur – og verja grund­vall­ar­sjón­ar­miðin – og hefj­ast handa við að end­ur­byggja rétt­lát­ara sam­fé­lag. 

Þessi pist­ill er skrif­aður í til­efni þess að ég hef ákveðið að sækj­ast eftir emb­ætti for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands á kom­andi þingi sam­bands­ins. Ég hef því fengið fyr­ir­spurnir síð­ustu daga um hver áherslu­mál mín séu – og fyrir hvað ég standi. Ég mun reyna að gera grein fyrir því á kom­andi vik­um.

Höf­undur er fram­kvæmda­stjóri AFLs Starfs­greina­fé­lags.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar