Ef hástéttirnar fá að ráða nær öllu verða þær frekar

Gunnar Björgvinsson segir að fólk hafi ekki gott af því að eiga of mikið af peningum. Þá fari það bara að borða gull og í því er engin næring.

Auglýsing

Ef hástétt­irnar fá að ráða nær öllu verða þær frekar og hygla sér sjálfum og kúga lág­stétt­irn­ar.  Er það það sem fólk vill eða vill það sann­gjarn­ara sam­fé­lag?

Nú um stundir á til­tölu­lega fámennur hópur stóran hluta afla­heim­ilda við Ísland og hefur efn­ast tals­vert á alþjóð­legan mæli­kvarða (sem dæmi batn­aði hagur (sem er eigið fé og arð­greiðsl­ur) sjáv­ar­út­vegs­ins um u.þ.b. 365 millj­arða frá hruni til loka árs­ins 2016 sem er ríf­lega milljón á hvern Íslend­ing).  Þing­menn hækk­uðu um 45% í launum nýverið sem er langtum meiri hækkun bæði í krónum talið og pró­sentum en talað er um að inni­stæða sé fyrir aðra í kom­andi kjara­samn­ing­um. Rík­is­for­stjór­arnir hækk­uðu líka tals­vert – hvernig ætli skúr­inga­kon­unni líði, sem borgar sína skatta, þegar hún sér þær upp­hæðir sem um ræðir hjá fólki sem hún er n.b. með í vinnu?  Húsa­leiga hefur líka hækkað ofboðs­lega mikið á fáum árum að hluta til með til­komu almennu leigu­fé­lag­anna og svo virð­ist sem þeim haldi engin bönd. Skatt­byrði þeirra tekju­lægstu hefur auk­ist und­an­farna tvo ára­tugi en þeir sem eiga pen­inga og eru með fjár­magnstekjur borga lága pró­sentu í fjár­magnstekju­skatt (sam­an­borið við tekju­skatt). Nú skilst mér að ójöfn­uður sé mun meiri þegar horft er til eigna en tekna, en hér hefur auð­legð­ar­skattur einnig verið aflagður og svo skilst mér að það sé lög­legt að eiga reikn­inga í skatta­skjólum (þó svo það sé að sjálf­sögðu bannað að svíkja undan skatt­i).

Hér ekki verið að mæl­ast til að hækka laun allra um 100% eða eitt­hvað álíka heldur að skipta kök­unni með sann­gjarn­ari hætti því öll störf eru mik­il­væg, en auk þess er verið að mæl­ast til verka­lýðs­fé­lög, almenn­ingur og dug­andi þing­menn dragi línu í sand­inn og sporni við frekju og kúgun hástétt­anna svo það megi verða sann­gjarn­ara sam­fé­lag.  Einnig finnst mér sár­vanta að lág­stétt­irnar hafi sína rödd og tals­menn á þingi, þar eru nógu margir sem gæta hags­muna þeirra rík­ustu og svo er ég efins um að ein­hver óskóla­geng­inn þing­maður (eftir skóla­skyldu) sé á þingi – eru þing­menn ekki flestir lang­skóla­gengnir (og gætu þar af leið­andi hugs­an­lega hugsað meira um hags­muni ann­arra lang­skóla­geng­inna)?  En ég tel að heim­ur­inn væri mun betri ef þeir lægst settu hefðu meiri völd, a.m.k. treysti ég mun betur sam­verka­mönnum mínum á kaffi­stof­unni í vinn­unni til að taka ákvarð­anir en flestum þeim sem eru á þingi.

Auglýsing

Fólk hefur auk þess ekki gott af því að eiga alltof mikið af pen­ing­um, þá fer það bara að borða gull – sem engin nær­ing er í og haga sér eins og vit­leys­ingar – eins og þau gerðu fyrir hrun.  En það vilja allir lifa mann­sæm­andi lífi (von­andi án mik­illa öfga) og að því ætti að stefna.

Hér er auk þess nokkuð sem mér datt í hug og gæti komið að gagni, hver veit.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar