Óþarfa viðkvæmni

Ritstjóri og fréttamaður Kveiks svara grein forstöðumanns upplýsingamála hjá Gildi Lífeyrissjóði sem birt var á Kjarnanum í morgun.

kveikur
Auglýsing

Aðal­birni Sig­urðs­syni, for­stöðu­manni upp­lýs­inga­mála hjá Gild­i-líf­eyr­is­sjóði, er mikið niðri fyrir í skoð­ana­grein sem birt­ist á vef­síðu Kjarn­ans, þar sem hann gagn­rýnir umfjöllun Kveiks um líf­eyr­is­sjóð í Nevada.

Um­fjöll­unin sem Aðal­björn vísar til í grein sinni var við­tal við sjóð­stjóra líf­eyr­is­sjóðs opin­berra starfs­manna í Nevada, ­Steve Ed­mund­son, sem vakið hefur athygli fyrir aðra og hóg­vær­ari nálgun en gjarnan tíðkast í fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóða - og góðan árang­ur. Fjöl­miðlar á borð við New York Times og Wall Street Journal hafa fjallað um sjóð­stjór­ann og árangur hans. Það þykir sæta tíð­indum að ­Steve sé eini starfs­maður líf­eyr­is­sjóðs­ins sem hefur með fjár­fest­ingar að gera. Rétt eins og kom fram í umfjöllun Kveiks reiðir hann sig þó á aðstoð utan­að­kom­andi fjár­fest­inga­ráð­gjafa, en hann hefur fækkað þeim úr 19 í 9 frá því að hann tók við starf­inu. Með aðferðum sínum vill ­Steve ­meina að hann spari líf­eyr­is­þeg­um ­Nevada um 150 millj­ónir dala á ári, eða hátt í 16 millj­arða.

Auglýsing
Umfjöllun Kveiks var saga af manni sem vill svo til að ber einn ábyrgð á álíka miklum fjár­munum og sem nemur eignum allra íslensku sjóð­anna sam­an­lagt (sem voru rétt rúm­lega 4.100 millj­arðar við lok síð­asta árs). Það er ein­fald­lega for­vitni­legt. Umfjöll­un­inni var aldrei ætl­að að vera heild­stæð umfjöllun um líf­eyr­is­sjóða­kerfið á Ísland­i. Hins vegar tekur Kveikur undir að slík umfjöll­un ­gæt­i ver­ið á­huga­verð, enda ráð­stafa íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir him­in­háum fjár­hæðum í eigu lands­manna, stundum á umdeildan hátt. Það hefur verið gagn­rýnt und­an­farin miss­eri og ýtir ef til vill und­ir­ við­kvæmni fyrir umfjöllun eins og þeirri sem var í Kveik 9. októ­ber.

Það er held­ur ekki úti­lokað að Kveikur ráð­ist ein­hvern tím­ann í slíka vinn­u – en umfjöll­un­inni um sjóð­inn í Nevada var aldrei ætlað að ná yfir svo breitt svið.

Höf­undar eru frétta­maður og rit­stjóri Kveiks.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar