Almenningur á næsta leik - Þorir hann að spara?

Auglýsing

Kaup­máttur er mikið tísku­hug­tak hjá stjórn­mála­mönn­um, einkum þeim sem eru við völd. Algengt er að stjórn­mála­menn tali um að staða efna­hags­mála sé sífellt að batna og verða betri, enda sýni tölur um kaup­mátt launa það. Fólk geti nú keypt meira - að með­al­tali - en áður fyrir launin sín.

Ég hef tekið eftir því að stjórn­mála­menn nota þessa við­miðun oftar en margt annað til þess að greina stöðu mála. Sér­stak­lega var þetta áber­andi í aðdrag­anda þess að fjár­mála­kerfið hrundi, þegar gengi krón­unnar styrkt­ist hratt. Þó jókst kaup­máttur launa nær alveg þangað til­ hag­kerfið var komið í gjör­gæslu.

Ég á erfitt með að átta mig á þessum mæli­kvarða, satt best að segja, finnst hann ekki nógu sér­tæk­ur. Fólk er í mis­jöfnum aðstæðum með sín laun og það þarf að greina allan kostnað fólks til þess að sjá hvort launa­þró­unin sé æski­leg eða óæski­leg. Inn í heild­ar­jöfn­una spila margir hlut­ir, þó með­al­talið geti sýnt að staðan sé að batna.

Auglýsing

Núna þegar það er verið að semja um for­dæma­lausar launa­hækk­anir á vinnu­mark­aði, hjá næstum öllum stétt­um, þá finnst mér valið standa á milli tveggja val­kosta, hvað fram­haldið varð­ar. Ann­ars vegar að samn­ing­arnir verði í raun um að auka verð­bólgu og hækka vexti, eins og því maður margt bendir til, eða hins vegar til þess að hefja algjör­lega nýtt skeið; að auka sparn­að­ar­vit­und meðal almenn­ings og reyna að stuðla að meira jafn­vægi í hag­kerf­inu.

Ef seinni kost­ur­inn er far­inn, og skyn­semi í útgjöldum heim­ila verður inn­leidd í meira mæli en nú þekkist, þá gæti

Þessar upplýsingar birtust í Peningamálum í maí. Þessar upp­lýs­ingar birt­ust í Pen­inga­málum í maí.

vel hugs­ast að umsamdar launa­hækk­anir muni skila sér í betri stöðu hjá nær öllum stétt­um. Þannig myndi almenn­ingur beita sér fyrir því að halda verð­bólgu í skefj­um, og þar með vöxt­um, þó það verði lík­lega erfitt. Fimmtán til 30 pró­sent launa­hækk­anir er gríð­ar­lega mikið fyrir hag­kerfi sem ekki hefur aukið fram­leiðni að neinu marki árum sam­an.

Sam­kvæmt nýlegum tölum frá Meniga er um þriðj­ungur heim­ila í land­inu með yfir­drátt­ar­lán. Það eru hávaxta­lán lán til skamms tíma, sem eru í nær öllum til­fellum óskyn­sam­leg fyrir heim­ili, enda þarf að end­ur­greiða höf­uð­stól láns­insn til baka með him­in­háum vöxt­um.

Það er full ástæða til þess að hafa áhyggjur af því að inni­stæðu­laust vaxt­ar­skeið einka­neyslu sé framund­an, en almenn­ingur á næsta leik. Hann getur brugð­ist við nýlegum samn­ingum aðila vinnu­mark­að­ar­ins, og stjórn­valda, með því að halda pen­ingum hjá sér, en eyða honum ekki í vit­leysu. Það getur skipt miklu máli fyrir fram­hald­ið. Ef það eru nógu margir sem hugsa með þessum hætti og breyta eftir því.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None