Bakherbergið: Lekamálið verið atvinnuskapandi fyrir mjög marga

lekavandam--l.jpg
Auglýsing

Í dag, 20. nóv­em­ber, er nákvæm­lega eitt ár síðan að Frétta­blaðið og mbl.is birtu fréttir sem byggðu á minn­is­blaði um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos sem Gísli Freyr Val­dórs­son, þáver­andi aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, lak í miðl­anna.

Líkt og alþjóð, og raunar ýmsir sem til­heyra henni ekki, veit þá vildi eng­inn við­ur­kenna að minn­is­blað­inu hafi verið lekið úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu þangað til að Gísli Freyr gekkst loks við því fyrr í þessum mán­uði, degi áður en að aðal­með­ferð yfir honum vegna lek­ans átti að hefj­ast.

Í milli­tíð­inni hefur Hanna Birna ítrekað neitað að minn­is­blaðið hafi komið frá henni og hennar fylgd­ar­liði og sett þrýst­ing á þá aðila sem fjalla um mál­ið, rann­saka það eða sak­sækja, um að hætta því.

Auglýsing

Það verður þó ekki litið fram­hjá því að þetta brölt Hönnu Birnu og aðstoð­ar­manna hennar hefur verið atvinnu­skap­andi fyrir ansi marga

Það verður þó ekki litið fram­hjá því að þetta brölt Hönnu Birnu og aðstoð­ar­manna hennar hefur verið atvinnu­skap­andi fyrir ansi marga. Fyrst skap­aði þetta auð­vitað vinnu fyrir blaða­menn DV, sem opin­ber­uðu lek­ann og fylgdu þeirri opin­berun eftir af miklu harð­fylgi. Vald­níðslan og yfir­hylm­ingin sem ráð­herr­ann hlóð í í kjöl­farið skap­aði svo vinnu fyrir blaða- og frétta menn ann­arra miðla, utan þeirra örfáu sem ákváðu að stilla sér upp með Hönnu Birnu í mál­inu í stað þess að segja frétt­ir.

Eftir að til­raunir til að þagga málið niður mistók­ust skap­aði það nýtt og fram­andi verk­efni fyrir rekstr­ar­fé­lag Stjórn­ar­ráðs­ins, sem var fengið til að hvít­þvo þau af lek­an­um. Það var gert með rann­sókn sem fólst í að leita eftir tveimur nöfnum í titli tölvu­pósta. Þegar þau fund­ust ekki var synda­af­lausn und­ir­rit­uð.

Lögreglan hefur haft nóg að gera í Lekamálinu. Lög­reglan hefur haft nóg að gera í Leka­mál­in­u.

Næst skap­aði þetta tölu­verða vinnu fyrir lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem ákvað að rann­saka mál­ið. Sú rann­sókn skap­aði síðan vinnu fyrir banda­rísku alrík­is­lög­regl­una, FBI, sem aðstoð­aði íslenska kollega sína við rann­sókn á tölvu­pósti Gísla Freys.

Eftir að Gísli Freyr var ákærður var ljóst að Hanna Birna gæti ekki lengur setið sem ráð­herra dóms­mála. Í stað þess að hún segði af sér var ákveðið að færa mála­flokka dóms- og ákæru­valds til Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Hann setti síðan hinn hund­trygga aðstoð­ar­mann sinn Jóhannes Þór Skúla­son, í dóms­mála­ráðu­neyt­ið. Leka­málið var því atvinnu­skap­andi fyrir þá félaga.

Mál­ið ­skap­aði svo auð­vitað vinnu fyrir ákæru­valdið sem rak málið á hendur Gísla og gaf út ákæruna í því.

Þá er ótal­inn Umboðs­maður Alþing­is, sem ákvað að rann­saka for­dæma­laus afskipti Hönnu Birnu að rann­sókn Leka­máls­ins, en hún boð­aði Stefán Eiríks­son, fyrrum lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, ítrekað á sinn fund til að ræða það. Umboðs­mað­ur, sem hefur haft nóg að gera í mál­inu, mun birta nið­ur­stöðu sína í því í næstu viku.

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ari, fékk síðan hlut­verk í þessu öllu saman þegar hann veitti Hönnu Birnu ráð­gjöf, meðal ann­ars í tengslum við svör hennar til Umboðs­manns Alþing­is.

Og þá er bara eftir Lagna­þjón­ustan ehf., sem ákvað að nýta sér leka­málið til að selja þjón­ustu sína, eins og sést á mynd­inni hér að ofan.

Bak­her­bergið óskar lands­mönnum öllum til ham­ingju með Leka­máls­af­mæl­ið!!!

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None