Bakherbergið: Umboðsmaður almennings dró tjöldin frá

16320772126_6901561999_z.jpg
Auglýsing

Fólkið í bak­her­berg­inu er sam­mála um, að dag­ur­inn í dag hafi verið sögu­legur og atburða­rásin for­dæma­laus. Ein mesta von­ar­stjarna íslenskra stjórn­mála, sé horft aðeins nokkur ár aftur í tím­ann, Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík og inn­an­rík­is­ráð­herra, gerð­ist aug­ljós­lega brot­leg við laga­reglur þegar hún skipti sér af rann­sókn lög­reglu á leka­mál­inu þar sem ráðu­neyti hennar og póli­tískir aðstoð­ar­menn voru til rann­sókn­ar. Hanna Birna við­ur­kenndi að hafa skipt sér óeðli­lega af mál­inu, fyrir tveimur vikum síð­an, sem gerði Umboðs­manni Alþingis auð­veld­ara um vik að ljúka frum­kvæð­is­at­hugun sinni með afger­andi og óum­deildri nið­ur­stöðu. Alvar­leik­inn er öllum ljós, og málið er nið­ur­lægj­andi fyrir Hönnu Birnu, Sjálf­stæð­is­flokk­inn, íslensk stjórn­mál og rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar.

Sigmundur DavíðEinn sigu­veg­ari máls­ins er aug­ljós; Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþings og jafn­framt almenn­ings. Það sem vekur athygli fólks­ins í bak­her­berg­inu, er hversu beitt skrif Tryggva voru alveg frá fyrstu stigum máls­ins. Hann ákvað strax, eftir að Stefán Eiríks­son hafði upp­lýst hann um hin dæma­lausu afskipti ráð­herra af lög­reglu­rann­sókn­inni á ráðu­neyti henn­ar, að þetta mál yrði til lykta leitt fyrir opnum tjöld­um, enda snérist málið um leynd og valda­brölt bak við tjöld­in. Fyrsta mál á dag­skrá Tryggva var að draga tjöldin frá, og hefja síðan að óska eftir upp­lýs­ingum með hníf­beittan penn­ann að vopni, alveg þar til málið var til lykta leitt og sekt Hönnu Birnu í mál­inu var öllum ljós, og hún búin að afsaka sig í bak og fyrir beint gagn­vart hon­um. Ein rit­deila í þess­ari mögn­uðu rimmu Tryggva við stjórn­völd, sem Tryggvi gjörsigr­aði og steig aldrei feil­spor í, var þegar hann spurði Sig­mund Davíð hár­beittra spurn­inga um hvort ráð­herrar í rík­is­stjórn hans störf­uðu eftir siða­regl­um, líkt og lög gera ráð fyr­ir. Sig­mundur Davíð full­yrti að svo væri, sem reynd­ist ekki vera rétt líkt og Tryggvi hafði grun­semdir um, og svar­aði síðan með skæt­ingi eins og ofdekraður ung­ling­ur, hvort umboðs­maður Alþingis hefði sjálfur sett sér siða­regl­ur! Umboðs­maður svar­aði þessu kostu­lega bréfi for­sæt­is­ráð­herra af yfir­veg­un, og hélt áfram að rök­ræða sig í gegnum allar hindr­an­irnar sem stjórn­völd settu upp­ til þess að kæfa störf Tryggva nið­ur.

Það er rétt sem Tryggvi Gunn­ars­son sagði á opnum fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í dag, að nú þyrfti að draga lær­dóm af mál­inu svo það væri tryggt að mál af svip­uðum toga myndi ekki end­ur­taka sig. Það er ekki hægt að gera annað en vona það besta í þeim efn­um. En jafn­framt er það fagn­að­ar­efni að kerfið sem á að hafa eft­ir­lit með vald­níðslu ráð­herra virkar þegar á reyn­ir. Í það minnsta þegar það er með menn eins og Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra, og Tryggva Gunn­ars­son inn­an­borðs.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None