Pillunotkun ungmenna: rauða pillan

Kjartan Sveinn Guðmundsson skrifar þríleik um internetmenningu. Hann fjallar um mismunandi hliðar á internetnotkun mismunandi hópa ungs fólks. Þetta er fyrsta greinin.

Auglýsing

Í mynd­inni Fylki (e. Mat­rix) fer lífið fram í sýnd­ar­veru­leika sem er stjórn­aður af vél­um. Til þess að brjót­ast úr sýnd­ar­heim­inum og berj­ast gegn skugga­meist­ur­unum þarf að taka rauða pillu, en ef þú vilt lifa áhyggju­laus án vit­neskju um sann­leik­ann getur þú tekið bláa pillu. Þessi mynd­lík­ing er horn­steinn  í hugs­un­ar­hætti ungra hægri öfga­manna og útskýrir að hluta til hvers vegna það er svo erfitt að ná til þeirra.

Sú gjá sem mynd­ast milli hægri öfga­manna og ann­arra sam­fé­lags­hópa stafar af mis­mun­andi túlk­unum á aðstæðum nútím­ans og þróun sam­fé­lags­ins. Þær umræður og breyt­ing­ar­kröfur sem við sjáum í dag geta leitt til þess að fólk taki aukna sam­fé­lags­lega ábyrgð og hagi sér betur en fyrri kyn­slóð­ir, eða að fólk afneiti raun­veru­leik­anum og skríður í holu/kjall­ara þar sem það skapar sinn eig­in, ein­fald­ari raun­veru­leika. Þetta er við­bragð þeirra sem fá í mag­ann við að melta þeim mýmörgu breyt­ingum sem við sjáum ár frá ári. 

Þetta gera margir með því að fest­ast í tölvu­leikj­um, hlusta frekar á Joe Rogan en RÚV (eða Kjarn­ann!), nenna ekki á vinnu­markað eða í nám og eyða löngum stundum í að tala við skoð­ana­bræður sína um kvenna­bar­áttu, stjórn­mála­væð­ingu kvik­mynda og fleiri merki­leg mál­efni.

Auglýsing
Því rétt eins og gam­alt fólk heldur að það „megi ekki neitt“ vegna þess að ein­hver sagði það í pott­inum eru hug­myndir hægri-öfga­manna byggðar á skakkri heims­mynd. Þetta teng­ist oft í byrjun andúð á femín­isma eða inn­flytj­end­um, Inter­net algórit­minn tekur svo við og áður en þú veist af er dreng­ur­inn byrj­aður að tala um hrun Róm­ar­veldis og skipu­lagða útrým­ingu á hinum hvíta kyn­stofni. Rauða pillan er kom­inn lengst í kokið á karl­inum og hann sem sér og skilur sam­fé­lagið svo vel tekur engan þátt í því og fer varla úr húsi, nema ef til vill í spássit­úra til þess að dreifa Norð­ur­víg­is-á­róðri.

Við erum ennþá að vinna okkur úr tímum þar sem hug­myndir sner­ust um að rífa niður og byggja nýtt, hvort sem það var nýfrjáls­hyggj­an, komm­ún­ismi eða bíla­væð­ing höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Á meðan þetta hefur ekki mikil áhrif á með­al­mann­eskj­una sem fer reglu­lega til Tene og er með kok­teilsósu á standby í ísskápn­um, þá geta sumir tekið ógur­lega nærri sér að sjá heim­inn eins og við þekkjum hann riða reglu­lega til falls, hvort sem það er vegna lofts­lags­breyt­inga, fjár­málakreppa, heims­far­aldra, hung­ursneyða, minnk­andi áherslu á dönsku­kennslu í skólum eða ein­hvers ann­ars.

Ef það eina sem þú gerir í því ástandi er að vinna inn­an­tómt, ómerki­legt starf, er þá ekki góð hug­mynd að halda að heim­ur­inn sé rek­inn af leyni­hópi sem hatar menn eins og þig og að allir sem eru ósam­mála þér séu vél­menn­i? 

Höf­undur er nemi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar