Um skjálífi og skjána

Örn Bárður Jónsson skrifar um þau sem eru hvað bogn­ust inn í heim tækn­inn­ar, þau sem eru kengbogin inn í skjáinn.

Auglýsing

Með síð­ustu grein minni í Kjarn­an­um, sem ber yfir­skrift­ina - Inc­ur­vatus in se - sem merkir að vera keng­bog­inn inn í sjálfan sig, lof­aði ég að rita aðra um þau sem eru keng­bogin inn í skjá­inn.

Við erum mörg sem drög­umst að skján­um. Alnetið geymir urmul upp­lýs­inga og þangað er gott að leita. Við lesum þar efni frétta­miðla, horfum jafn­vel á bíó­myndir og þátt­araðir og hvað eina. Við leitum leiða í borgum heims­ins og þurfum engin kort leng­ur, þau eru í sím­an­um. Svona er nútím­inn.

Mér finnst þessi tækni stór­kost­leg og skemmti­leg í senn, en mik­il­vægt er að gæta þess að hverfa ekki algjör­lega inn í skjá­inn og missa um leið skyn á umhverfi sitt.

Ég hjóla mikið og fer 1/3 af öllum mínum ferðum um borg og bý á hjóli. Hjóla­stígar eru orðnir svo margir í borg­inni að til fyr­ir­myndar er. Sums staðar eru hjóla­stígar aðgreindir frá stígum fyrir gang­andi en ann­ars staðar ekki.

Auglýsing
Á hinum síð­ar­nefndu og á göngu­götum borg­ar­innar er fólk gjarnan á gangi eins og ætl­ast er til og mörg eru þau sem ganga þar með augun límd við skjá­inn. Þau gefa sér ekki tíma til að staldra við og leita að því sem þau van­hagar um, heldur ganga gón­andi á skjá­inn. Og þeim bregður við þegar hjóla­bjöll­unni er hringt og þá er undir hæl­inn lagt hvort þau hoppa til hægri eða vinstri.

Skjá­glápið getur nefni­lega reynst slysa­gildra.

Sumir karlar sem aka um á sínum sjálfrenni­reiðum eru með augun á skjánum við akstur og jafn­vel í bílum sem eru nýir og með hand­frjálsum bún­aði. Þá eru ungar og upp­teknar konur engir eft­ir­bátar karla og reyn­ast því margar afar skæðar í skjá­notkun við akst­ur.

Um þessa hegðun hefur verið smíðað karl­kyns­orðið skjáni, í fleir­tölu skján­ar. Því er nú svo farið að öll ný fyr­ir­brigði í heim­inum þarfn­ast skil­grein­ingar og það eitt að gefa þeim nafn er í raun vís­inda­legur verkn­að­ur.

Adam var fyrsti vís­inda­maður ver­aldar því hann gaf öllu nafn (1. Móse­bók 2.20) og aðgreindi hvert fyr­ir­brigði frá öðru. Og enda þótt Adam hafi ekki verið lengi í Para­dís og í reynd verið rek­inn úr þeim skóla, var hann alls eng­inn kjáni, en hann á þó marga ætt­ingja í okkar sam­tíð sem kalla má skjána.

Hér er hægt að hlusta á upp­lestur af grein­inni.

Höf­undur er fv. sókn­ar­prestur

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar