Viltu að börnin þín geti lifað?

Frambjóðandi Sósíalistaflokksins í Reykjavík segir að Ísland verði að hverfa frá kapítalisma og taka upp raunverulega umhverfisstefnu eins og sósíalisminn boði.

Auglýsing

Þetta er ógn­væn­lega spurn­ing, en hún er löngu orðin tíma­bær. Jörðin brenn­ur, jöklar bráðna, við­stöðu­laus mengun og nátt­úran grætur af sárs­auka en gráð­ugum stór­kap­ít­alistum hér á landi og ann­ars staðar er alveg sama! Skítt með börnin og barna­börn­in. 

For­múla kap­ít­alista um leiðir til að sporna gegn ham­fara­hlýnun gengur ekki upp. Það dugar engan veg­inn að gera kap­ít­al­ismann sjálf­bæran eða grænan eins og nú er boðað af þeim sem vilja hanga á kap­ít­al­isma eins og hundar á roði. Það verður að umvefja jörð­ina kær­leika, virð­ingu og umhyggju. Og það er það sem við sós­í­alistar viljum gera. Gera allt sem þarf til að bjarga mann­kyni og nátt­úr­unn­i. 

Það er óstjórn­leg tregða hjá þeim sem styðja núver­andi efna­hags­kerfi, eða kap­ít­al­isma, að kyngja því að þeirra leiðir dugi ekki til. Það er erfitt að við­ur­kenna að sú hug­mynda­fræði sem maður hefur stutt, kannski alla ævi, gangi ekki lengur upp. Það þurfi að henda henni og það fljótt til að bjarga jörð­inni og börnum okkar og barna­börn­um. Þetta er risa­stór áskorun fyrir stjórn­mála­flokka á Alþingi núna, því allir styðja þeir núver­andi kerfi mark­aðs­hyggju, sam­keppni og kap­ít­al­isma. Meira að segja Vg þó þeir þyk­ist ann­að, en gerir það þó ekki miðað við frammi­stöð­una í núver­andi rík­is­stjórn. Skoðum þetta. 

Stór­fyr­ir­tækin og gömlu sós­í­alist­arn­ir 

Núver­andi efna­hags­kerfi gengur meðal ann­ars út á að til þess að vaxa þurfi að auka hag­vöxt. En þá strax loga allar við­vör­un­ar­bjöll­ur. Því hag­vaxt­ar­for­múlan krefst auk­innar neyslu svo vöxt­ur­inn auk­ist. Auk­inni fram­leiðslu og neyslu fylgir gríð­ar­legur vöxtur í mengun og ham­fara­hlýn­un. Og það er það sem er að fara með jörð­ina að stórum hluta. Tor­tíma henn­i. 

Auglýsing
En af hverju er ekki tekið á þessu með festu. Svarið er ein­falt. Stór­fyr­ir­tækin sem menga mest með sinni fram­leiðslu hafa engan áhuga á því, og heldur ekki þau íslensku. Mark­miðið hjá þessum fyr­ir­tækjum er sífellt meiri gróði, skítt með nátt­úr­una og fram­tíð­ina. Og þessi fyr­ir­tæki ráða öllu í heim­inum í krafti fjár­magns­ins. Þau hafa stjórn­mála­menn í vas­an­um, ráða dóms­kerf­inu leynt og ljóst sem og fram­kvæmda­vald­inu. Líka á Ísland­i. 

Svo eru það gamlir sós­í­alistar sem segj­ast hafa vitkast með árunum og styðja nú mark­aðs­kerf­ið, sam­keppni og kap­ít­al­isma. Það er svo­lítið erfitt að við­ur­kenna að hafa haft rangt fyrir sér, einkum ef fólki finnst það til­heyra intellíg­ens­í­unni á Ísland­i. 

Lóan okkar kemur ekki aft­ur? 

Nú er svo komið að líf­verur sem áður héldu til á Íslandi, finn­ast ekki leng­ur. Þær eru farnar eða á leið­inni að hverfa. Menn spá því að meira að segja lóan sem við öll elskum, vor­boð­inn okk­ar, komi ekki meir. 

Eins og fyrr segir dugar engan veg­inn til, að gera kap­ít­al­ismann sjálf­bæran eða græn­an. Það er heldur ekki nóg að gera ein­stak­ling­inn ábyrgan fyrir loft­lags­vand­an­um, eins og að fara alltaf með tau-eða papp­írs­poka út í stór­mark­að. En þar mæti fólk auð­vald­inu í allir sinni mynd, fullar hillur af plasti og öðrum meng­un­ar­vald­andi umbúð­um. Sem verða umfangs­meiri og umfangs­meiri. 

Þú sem lagðir svo mikla áherslu á tau-eða papp­írs­poka, sem þú tókst með þér að heiman, fyllir þú við kass­ann í búð­inni af plasti og umbúðum sem hafa valdið og munu valda ham­fara­hlýn­un. Og afhverju það? Vegna þess að stór­fyr­ir­tækin og fleiri fyr­ir­tæki hafa engan áhuga á að taka þátt í að verja umhverf­ið. Eins og fyrr segir er þeirra mark­mið að græða meira. Það er mik­il­vægt að fólk átti sig á þessu. Og stór­fyr­ir­tæki um alla heim ætla að nýta áfram meng­andi jarð­efna­elds­neyti og fleiri efni sem menga óstjórn­lega. Við verðum að hverfa frá kap­ít­al­isma og taka upp raun­veru­lega umhverf­is­stefnu eins og sós­í­al­ism­inn boð­ar.

Höf­undur er þing­fram­bjóð­andi Sós­í­alista­flokks Íslands í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og sós­íal­ískur femínisti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar